Valsblaðið - 01.05.2005, Side 90

Valsblaðið - 01.05.2005, Side 90
Mikilvægt samslarl milli ValS og Sportkluhlis LandsMa íslands Knattspyrnufélagið Valur og Sportklúbbur Landsbanka Islands endurnýjuðu á árinu samning um samstarf sín á rnilli. I meginatriðum er samningurinn þannig að iðkend- ur skrá sig í Sportklúbb LÍ og á móti veitir Landsbank- inn veglegan styrk til Vals, iðkenda og foreldraráða yngri flokkanna. Allir iðkendur sem stofna reikning hjá Lands- bankanum fá um leið íþróttatösku og inneign á reikning- inn. Þess má einnig geta að Sportklúbburinn niðurgreiðir félagsgalla iðkenda allra deilda félagsins. Myndarlegur samningur af þessu tagi er mjög mikilvægur fyrir Val og kemur til með að auðvelda yngri flokka starf allra deilda félagsins. Hægt er að snúa sér til Péturs íþróttafulltrúa til að ganga frá skráningunni. Frá uppskeruhátíð knattspyrnudeildar. Jón Norland (Smith & Norland) aðalstyrk- araðili deildarinnar og Þórey Arnadóttir frá Landsbankanum með blómvendi frá unglingaráði með þakklœti fyrir gott samstarf. Golfmót Vals haldið í 16. sion Fimmtudaginn 16. júní var í sextánda sinn haldið hið stór- skemmtilega golfmót Valsmanna. Leikið var á velli Golfklúbbs Odds í Urriðaholti og spiluð var punktakeppni með hámarksvall- arforgjöf karla 24 og kvenna 28. Sigurvegari var mótsins með 38 punkta var Guðrún Kristín Bachmann, í öðru sæti rétt á eftir Guðrúnu var Jóhanna Bárð- ardóttir með 37 punkta og í þriðja sæti var svo Sigurður Þór- arinsson með 35 punkta. Keppt var um einn veglegasta farandbikar sem um getur í íslenskri íþróttakeppni. Hann er gefinn af Garðari Kjartanssyni til minningar um bróðurson hans, Jóhann Sebastian Einarsson. Nýip lélagar velkomnir í ValSkÓrinn Æfingar eru á mánudögum kl. 20:00 í Fniðrikskapellu í vetur er 12. starfsár Valskórsins. Kórinn hefur tekið lagið við ýmis tækifæri í félagsstarfinu og lífgar söngurinn svo sannarlega upp á ýmsar samkomur. Nýir félagar eru ávallt hjartanlega velkomnir. Valskórinn hefur auglýst að það vanti í allar raddir og að ekki séu gerðar miklar kröfur um söngsnilli. Megin inntakið í kórstarfinu er góður félagsskapur og skemmtilegar stundir. Síðastliðið sumar var farið í söngbúðir að Sólheimum í Grímsnesi og þótti það takast mjög vel og er stefnt að því að kórinn endurtaki það næsta vor fyrir lokatónleikana. í vetur eru um 30 virkir kórfélagar og er kórinn reiðubúinn að koma fram við ýmis tækifæri í félagsstarfinu. Valsblaðið hvetur áhugamenn um söng í Val til að ganga í Valskórinn. Æfingar eru einu sinni í viku í Friðrikskapellu, á mánudögum klukkan 20:00. Stjómandi er Bára Grímsdóttir og undirleikari Helga Laufey Finnbogadóttir. 90 Valsblaðið 2005

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.