Valsblaðið - 01.05.2005, Qupperneq 93
Minning
inni. Hún lifði líkt og fuglar himins og
gekk svo hugrökk á það sem til var þegar
hún veiktist.
Við Guðrún vorum í vissum skiln-
ingi par. Hún var KR-ingur og ég
Valsmaður. Hvorugt félagið er neitt án
hins. Heimurinn er til fyrir andstæður
kennir Snorra-Edda. Valur og KR eru
andstæður eða par, þó ekki brúðarpar,
heldur hnífapar. Það gerir enginn neitt
með tveimur hnífum, en með hníf og
Knattspymufélagið Valur er byggt upp
af fjölda fólks á öllum aldri sem styðja
félagið hvert með sínum hætti, allt frá því
að stunda æfingar og keppni, sækja leiki
og samkomur á vegum félagsins til þess
að vera eingöngu málsvari í umræðunni á
kaffistofum. Allir eru mikilvægir hlekkir
í keðjunni.
í dag kveðjum við Valsmenn sterk-
an hlekk í Valskeðjunni. Það er Helgi
Loftsson sem nú er látinn langt um aldur
fram. Helgi var snemma kominn í stutt-
buxumar að Hlíðarenda og æfði og keppti
með Val fram á fullorðinsárin. Helgi var
mikilvægur hluti Valsheildarinnar og var
vinsæll félagi og hjá Helga var alltaf stutt
í brosið. Þegar keppnisferlinum lauk tók
við farsæll þjálfaraferill og naut Valur
krafta Helga til fjölda ára á þeim vett-
vangi. Helgi var jafnframt duglegur að
sækja leiki félagsins og skemmtanir og
verður nú sannarlega skarð fyrir skildi,
þegar Helgi er horfinn úr hópi Valsmanna
að Hlíðarenda.
Helgi var gæfumaður í lífi og starfi
og á þessari sorgarstund hugsa margir
Valsmenn hlýlega til góðra kynna sinna
af Helga. Knattspymufélagið Valur þakk-
ar Helga fyrir afar traustan stuðning og
gott starf alla tíð um leið og fjölskyldu
Helga eru sendar hugheilar samúðar-
kveðjur.
Grímur Sœmwidsen,formaður
Knattspyrnufélagsins Vals.
gaffli eru ýmsir vegir færir. Meðan fært
var kom hún í Valsfjósið í hverju mánu-
dagshádegi og sá til þess að allir fengju
hádegisverð og kaffi að lokinni kyrrðar-
stund í Friðrikskapellu. Hún lokaði Kaffi
Skeifunni og fór á Valsvöllinn að næra
heimamenn. Guðrún efnaðist ekki af
þeim viðskiptum en ég veit að þau voru
henni til gleði. Hún vissi sem er að það
er lítið gaman að vera í KR nema Valur
sé við hestaheilsu. Á Hlíðarenda þótti
líka varið í að hafa hjá sér dóttur Steina
Mosa sem var margfaldur fslandsmeistari
og hetja í sókn KR. Þess má geta að sá
glugginn í Friðrikskapellu sem snýr að
Blómsturvöllum er listaverk til minning-
ar um Steina Mosa og félaga hans í KR
og keppinauta þeirra í Val. Guð blessi
minningu Guðrúnar Þorsteinsdóttur.
Þorsteinn Haraldsson.
+
Helgi Loftsson
fæddur 31. mans 1945. dáinn 7. desember 2005
Kveðja frá íslandsmeisturum Vals í
4. flokki karla árið 1971
Helgi Loftsson var þeim eiginleikum
gæddur að ekki fór alltaf mikið fyrir
honum þar sem hann kom en hann setti
sitt mark á þá sem hans návista nutu.
Þannig var það árið 1971, þegar Helgi
tók við þjálfun 4 fl. Vals í knattspymu. í
þeim hópi voru margir ungir og efnilegir
knattspymumenn sem áttu eftir að mótast
og verða að mönnum.
Helgi fóstraði þennan
hóp afskaplega vel, og
lagði granninn að velgengi
flokksins það sumar, þegar
hann leiddi Val til sigurs í
fslandsmótinu eftir úrslita-
leik á gamla Melavellinum
við ÍBV.
Allir þeir leikmenn sem
þama léku vora að sigra í
íslandsmóti í knattspymu
í fyrsta skipti. Hafði þessi
árangur mikil áhrif á unga
drengi, gaf þeim sjálfs-
traust og metnað til frek-
ari afreka. Margir úr þess-
um hópi áttu ekki einungis
eftir að vinna marga sigra
með meistaraflokki Vals
síðar meir, heldur einnig
í öðram félögum, í lands-
liði íslands og í atvinnu-
mennsku erlendis.
Það er alveg ljóst að fyrsti sigur á
íslandsmóti gaf tóninn, og átti Helgi
þar stærstan þátt. Hann hafði lag á að fá
okkur strákana með sér án láta eða til-
skipana, og var ekki síður félagi og upp-
alandi en eingöngu knattspyrnuþjálfari.
Við minnumst Helga Loftssonar með
þakklæti í huga og viljum með þessu
fáu orðum votta fjölskyldu hans okkar
dýpstu samúð.
Helgi með drengina sína sem urðu íslandsmeistarar í
4.flokki 1971. Fremri röðfrá vinstri: Pétur Ormslev,
Albert Guðmundsson, Atli Eðvaldsson, Guðmundur
Þorbjörnsson. Miðröð frá vinstri: Atli Olafsson, Guð-
mundur Kjartansson, Karl Björnsson, Ottar Sveins-
son, Bjarni Harðarson. Efsta röð frá vinstri: Helgi
Loftsson, þjálfari, Hilmar Oddsson, Sverrir Gestsson,
Olafur K. Ólafs, Þorsteinn Ólafs og Björn Jónsson.
Valsblaðið 2005
93