Bjarmi - 01.06.2003, Blaðsíða 15
Lifandi orð
Vorsálmur
Lifandi orö,
að ofan þú fellur sem regn.
Örfoka storö
aö auðga er þér ei um megn.
Viö trúum því
aö þú gefir kirkjunni lífsþrótt á ný.
Lifandi orð, ó heyr okkur Herra:
Hjörtunum gef þitt sanna og lifandi orö.
Hve Ijúft er lifnar gróöur
og létt viö sumri hlær
frá Guöi kemur góöur
og gleðiríkur blær.
Er skepnur dansa og skoppa
og skríkir fugl á kvist,
þá börnin hlæja og hoppa
þau hrifin lofa Krist.
Vatni í vín
í veislu þú breyttir, Guös son.
Nærvera þín
er nóg til aö laða fram von.
Fyll okkar ker
af krafti þíns anda og hjá okkur ver.
Lifandi orö, ó heyr okkur Herra:
Hjörtunum gef þitt sanna og lifandi orð.
Þér, Drottinn, dýrð er sungin
um dásemd þína og gjöf!
Út rósin rauð er sprungin
upp reis úr kaldri gröf.
Þín miskunn, ást og mildi
og máttarverkin stór
þinn funa flýja skyldi
úr fimbulkulda snjór.
Máttinn þú átt,
viö öryggi finnum hjá þér.
Anda þinn brátt
lát umbreyta lýö þínum hér.
Gef okkur trú
svo gleði viö eignumst og fögnum þér nú.
Lifandi orð, ó heyr okkur Herra:
Hjörtunum gef þitt sanna og lifandi orö.
|
Merete Bandak
Þýöing: Haraldur Jóhannsson
Lát bjarmann sólar bjarta
mér beina til þín inn,
og hreinsa, Guð, mitt hjarta
ég helgan anda finn,
svo Ijúft mig langi að tala
og lesa orö þitt kært,
þinn kross mér kann aö svala
loks kenni hliöiö skært.
Gef ávöxt iðju minni
hún ætíð lofi þig
allt heppnist hverju sinni
þinn helgi andinn mig,
aö græöling gefa megi
svo grænt þar vaxi tré
aö víki ei af vegi
ég veikur beygi kné.
Martin Behm
Þýðing: Þorgils Hlynur
Þorbergsson