Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2003, Blaðsíða 38

Bjarmi - 01.06.2003, Blaðsíða 38
 Hrönn Svansdóttír Hver er... Hjalti Gunnlaugsson? Hjalti Gunnlaugsson leit fyrst dagsins Ijós þann 12. júní árið 1956. Hann byrjaði ungur að sækja sunnudagaskóla Hjálpræö- ishersins og heyrði þá í fyrsta sinn þann sannleika sem Guðs Orð hefur að geyma. Tónlistin höfðaði fljótt til Hjalta og kom það í Ijós er ungi drengurinn fór að hamra á orgel heima hjá pabba sínum og mömmu. Framtiðardraumar hans um að gerast organisti breyttust þó skyndilega er hann eignaöist sinn fyrsta gítar aðeins 12 ára gamall. Nú átti þetta nýja hljóð- færi hug hans allan. Hann fór í gítartíma hja Berta Möller sem kenndi honum fyrstu gripin - og þar með stóö Hjalti Gunnlaugsson hinn efnilegi á nýrri braut - braut sem hann hafði enga hugmynd um aö hann myndi enn feta 35 árum síðar. Á unglingsárum sínum reyndi hann fyrir sér með ýmsum popphljómsveitum, þá aö sjálf- sögðu sem gítarleikari. Það leiö þó ekki á löngu þar til trúin fór að banka upp á aftur hjá Hjalta. Árið 1980 vakti kristilegt starfsem kallaöi sig Ungtfólk með hlutverk athygli hins unga gítarleikara. Þessi starfsemi hélt þá kristilegar samkomur í Grens- áskirkju og einkenndust þær af gripandi lofgjörðartónlist og kröftugri prédikun Guðs Orðs. Hjalti komst þá aö þvi að sá sem hafði fært honum tónlistargjöfina í vöggugjöf vildi gefa honum meira. Hjalti Gunnlaugsson tók á móti Jesú Kristi inn í líf sitt þetta ár. í kjölfar þessara stóru ákvörö- unartöku fór Hjalti að upplifa á ýmsan hátt kraft Guðs og kær- leika. Ein af fyrstu kristilegu popp- hljómsveitunum hérlendis var 1.Kor. 13 og skipuðu hana nokkrir ákafir frelsaðir einstaklingar, þar á meðal Hjalti Gunnlaugsson, Hall- dór Lárusson, Páll Pálsson og Birgir Birgisson. Þessi hljómveit lagði fljótt land undir fót og heila eyju í leiðinni. Farin var trúboðs- ferð til Vestmannaeyja þar sem hljómsveitin flutti heilmikið af frumsömdu efni. 1.Kor.13 spilaöi þá einnig við ýmis tækifæri, í fé- lagsmiöstöövum Reykjavíkur og á vakningarsamkomum í rúm 2 ár. Gaf hún einnig frá sér plötu sem haföi að geyma tvö frumsamin lög. Á sama ári og Hjalti komst til trúar gaf hann sjálfur út lofgjörð- arsnældu sem bartitilinn „Opnum hjörtu okkar". Hann hafði þá áður aðstoöað við gerð hljóösnældunn- ar „Syngið Drottni nýjan söng" sem UMFH gaf út og söng Þor- valdur Halldórsson titillag snæld- unnar. Eftir þetta kom hann ná- lægt útgáfu á ýmsu kristilegu efni. Stjórnaði hann upptöku á plötu Jóns Sveinssonar sem kom út 1984. Hann gaf út sína fyrstu sólóplötu árið 1985 „Sannleikur- inn í mínu lífi” og voru öll lögin og flestir textarnir eftir hann. Frá 1985-1997 stjórnaði Hjalti Gunnlaugsson ásamt öðrum lof- gjörðarstarfi Frikirkjunnar Vegar- ins og stjórnaöi á þeim tíma upp- tökum á fjórum lofgjörðarsnæld- um sem Vegurinn gaf út og kom þetta safn lofgjörðarlaga nýlega út á geisladiski. Einnig stjórnaði Hjalti upptökum á plötunni „Hjálparhönd” sem ABC Hjálpar- starf gaf út og samdi hann 6 lag- anna á plötunni. Lög eftir Hjalta má einnig finna á hljómplötunum „Spurðu mig" og „Allir mætast þar" sam- tals 4 lög, sem Hvítasunnukirkjan 38

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.