Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.06.2003, Qupperneq 20

Bjarmi - 01.06.2003, Qupperneq 20
 Þátttakendur á Brautarhólsmóti á 5. áratug síðustu aldar. þýddi ég mikiö fyrir hann. Þá hafa einsöngvarar og aðrir leitaö til mín. Ég var stundum meö safn af erlendum textum á borðinu. Textarnir sem ég átti aö þýða voru mjög misjafnir. Ef ég þurfti aö byrja á því aö læra lögin tók þaö lengri tíma en ef ég kunni laglín- una var ég fljót aö þessu, en yfir- leitt er ég miklu lengur aö þýða en frumsemja. Þaö er vegna þess að ég reyni aö ná hugsuninni sem er í Gróðurinn þarf sól og vatn og því eru regnskúrir nauðsynlegar til að plönt- urnar vaxi. Við vöxum við erfiðleikana sem við mætum. frumtextanum. íslenskt rím meö stuðlum og höfuöstöfum bindur okkur mikiö meira en aðrar þjóöir. Hvað er þaö nýjasta sem þú hefur ort? Það er auðvelt að svara þessari spurningu. Það er Ijóðið Ég er oft eins og Pétur. Ég orti þaö í veik- indum mínum í vetur. Ég lagðist í rúmið 22. september og fyrir tæp- um mánuöi losnaði ég fyrst viö hækjurnar. Þessi vetur hefur verið mér mjög erfiður. Ég hef um æv- ina gengist undir margar læknis- aðgeröir. Allt hefur það verið leik- ur hjá veikindunum í vetur. Þetta var langur tími og mér leiö illa. Ég varð aö liggja á bakinu, nótt og dag í marga mánuði, það er sér- staklega erfitt fyrir astmasjúkling. Lilja hefur átt við veikindi aö striða alla ævi. Átján ára lá hún á Landakoti og segir mér frá því hvernig hún uppörvaöi konurnará sjúkrastofunni. Ég lá í margar vikur á Landa- koti. Hafi ég einhvern tíma getað gert eitthvert gagn á sjúkrastofu þá var það þar. Þegar ég fór aö geta talað og sungið var komið meö gítar inn til mín. Sjúklingur í næstu stofu var aö spyrja nunn- urnar hvort einhver gæti stillt fyrir hann gítarinn og þær komu með hann til mín. Ég hafði svo gítarinn og söng fyrir konurnar á stofunni. Hver þeirra átti orðiö sinn óska- sálm. Við vorum þarna fjórar. Ég varyngst þessara kvenna, ég man að tvær þeirra voru meö berkla. Þegar einni leið sem verst og hún var áhyggjufull baö hún mig um að syngja fyrir sig sálminn „Seg Jesú frá öllu, hann þekkir þig svo vel." Þetta voru ekki sálmar eftir mig, en ég var of illa haldin til að geta ort nokkuð á þessum tima. Við snúum okkur nú aö afmœlinu og titurð bókarinnar. Hver átti frumkvœðið að því að Liljuljóð kom út? Sigurður Árni Þórðarson, syst- ursonur minn, á uppástunguna að bókinni. Það er langt síðan hann byrjaði aö ræða viö mig um hvernig ég ætlaði að halda upp á afmælið mitt en ég sagöi að þaö þyrfti ekki að ræða það, ég færi bara eitthvað í burtu. Hann sagöi þá að það væri svo erfitt að gefa mér eitthvað og spurði, hvort ekki mætti gefa út eitthvað af Ijóðum mínum og sálmum. Ég fékk frest til umhugsunar og gaf síðan sam- þykki mitt. Skálholtsútgáfa tók þessari til- lögu mjög vel. Sigurður Árni valdi Ijóðin í bókina og ég samþykkti þau flest, var víst ekki alltaf jafn- auðveld viðureignar, svo hann varö stundum aö beita fortölum. Ég er sérlega ánægð með útlit bókarinnar og finnst mikið hafa verið lagt í það. Þeir hafa gert þetta vel og ég vona að bókin veröi einhverjum til blessunar, því þá er tilganginum náð. Það hafa nokkrir einstakling- ar hringt í mig eftir að þeir fengu bókina og tjáð mér það. Varstu ánœgö með afmœlisfagn- aðinn í Hallgrímskirkju á afmœlis- daginn, þann 11. maí? Já, ég er mjög ánægö með há- tíðina og afskaplega þakklát Schola Cantorum og Herði Áskels- syni. Þau sungu bara sálmana mína. Að vísu hafði ég svolítiö fyrir að leita uppi lögin við þá en allir voru boðnir og búnir að hjálpa mér. Mesta vinnu lagöi Sig- uröur Árni á sig. Að lokum spyr ég Lilju hvort henni finnist hún hafa greint handleiðslu Guðs í lífinu og þá hvernig. Hún situr hugsi dágóða stund áður en hún svarar. Fyrsta handleiöslan var þetta góða heimili sem Guð gaf mér. Og svo langaöi mig svo afskaplega mikið aö læra, en ég bjóst varla við að geta farið i skóla. Það var ekkert efnaheimili heima, en kennari minn, Þórarinn Eldjárn talaði viö pabba og ég var send til Akureyrar í Menntaskólann. Veik- indi mín settu strik í reikninginn en mig langaði til að halda áfram þegar ég var komin á bragðiö. Ég lauk námi, að vísu ekki með mín- um gömlu félögum í MA því veik- indin töfðu mig um eitt ár. Síðasta árið var ég um tíma á spítalanum á Akureyri, fékk pens- illin sem þá var nýkomið, var ein af fyrstu tilraunadýrunum aö prófa það. 20

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.