Bjarmi - 01.06.2003, Page 35
Samtalsmeðferð er því einnig
nauðsynleg. Stundum nægir hún
eingöngu. Þvi miöur veita geö-
læknar núorðið sjaldnast þá meö-
ferð heldur eru viðtöl þeirra frekar
til stuðnings og fræöslu. Því þarf
fólk sjálft aö leita til sálfræðings
eða sálgreinis. Þaö er óvitlaust aö
fá lækninn til samráðs við valið.
Læknar hafa ekki alltaf frumkvæöi
að þvi að mæla með samtalsmeð-
ferð. Því er mikilvægt aö hinn
þunglyndi sé vakandi fyrir því að
koma sér í hana. Margir setja
kostnaðinn f/rir sig. En það má
líka velta fyrir sér kostnaöinum
viö að vera vart nema skugginn af
sjálfum sér. Sá kostnaður kemur
ekki bara illa við pyngjuna.
Sálgæsla safnaðanna
Sálgæsla innan safnaða geturver-
ið ómetanlegur stuðningur ef
báðir aðilar hafa eðli hennar hug-
fast. Sálgæsla er ekki meðferð og
fæstir sem veita sálgæslu hafa
faglega, klíníska þjálfun til hennar.
Þaö er því mikilvægt að sálgætir-
inn þekki og virði takmörk sín.
Sálgæsla er fyrst og fremst sam-
fylgd til stuðnings en ekki við-
gerðaverkstæði. Allir sem veita
kirkjulega sálgæslu ættu að hvetja
þunglynda sem til þeirra leita til
að vera undir eftirliti læknis.
Þunglyndir upplifa sig gjarnan
sem máttlitil fórnarlömb sjúk-
dómsins og þvi er afar mikilvægt
að fræðast um hann. Þekking
dregur úr óvissu, bendir á mögu-
leika, eykur sjálfstraust og styrkir
einstaklinginn til að axla ábyrgð á
batavinnunni. Samskipti við aðra
sem hafa fengið sjúkdóminn geta
gert mikið gagn. Það væri óskandi
aö fleiri sem fengið hafa sjúk-
dóminn miðluðu öðrum af reynslu
sinni og innsæi. Forsenda þess að
svo megi verða er að þeir veröi
ekki brennimerktir fyrir vikiö og
úrskurðaöir vanhæfir verkamenn í
víngarði Drottins.
Hefðbundnar leiðir til iðkunar
og uppbyggingar í trúnni gagnast
þunglyndum oft takmarkað. Bæn,
biblíulestur og bræðrasamfélag
getur orðiö að þraut og pínu, ver-
ið innantómt og tilgangslaust. Viö
veröum að þora að brjóta upp
mynstriö og nýta fleiri farvegi.
Margir finna hvild og fróun í því
að hlusta á tónlist í staö þess aö
biðja sjálfir eða lesa. Það getur
veitt sterka vitund um návist Guðs
aö dvelja úti í náttúrunni og finna
samsvörun í sálinni við tilbrigði
hennar, hvort heldur er fuglasöng
eöa veðurofsa. Þetta er hvorki
síðra bænalíf né ómerkari helgi-
dómur.
Qpnað út á svalir
Þaö er öllum hollt að einfalda líf
sitt, ekki síst þeim þunglyndu. Það
má líka einfalda kirkjusókn með
þvi að sækja sunnudagaskóla
barnanna í stað guðsþjónustu eða
samkomu, sérstaklega ef fólki
finnst það ganga of nærri sér, sem
er ekki óalgengt á meðal þung-
lyndra. Svo er ekkert að þvi að
taka sér fri frá kirkjunni! Þar gætu
hinir heilbrigöu gert ómetanlegt
gagn meö þvi að leggja rækt við
náunga sinn með heimsóknum og
aðstoð við ýmis viðvik. Viö eigum
ekki bara að sinna fólki innan
veggja kirkjubyggingarinnar.
Trúarlíf einskorðast ekki við
trúarathafnir. Það er eðli lífs okk-
ar, andardráttur okkar. Þunglyndi
getur veriö ábending frá lífinu
sjálfu um aö tímabært sé að
hleypa ferskum vindum inn i sál-
ina, opna út á svalir og mæta líf-
inu án þess aö gluggarúðan verji
okkur fyrir náttúruöflunum.
Brautin til bata getur verið
jafnófyrirsjáanleg og leit mín að
inniskónum. Það er snúið aö
koma auga á gagnsemi rykmopp-
unnar við að draga úr fótkulda
mínum. En moppan getur dregið
inniskóna mína undan bókahill-
unni sem þeir runnu undir þegar
ég sparkaði þeim af mér til þess
aö dansa berfætt við grípandi lag
í útvarpinu.■
Ólöf I. Davíösdóttir er verslunarkona
og nemi. Hún hefur víöa haldið fyrir-
lestra um þunglyndi og kristna trú
innan lands sem utan.
Frekari fróöleik um trú og þunglyndi
má finna á kristilegum vefsiðum um
þunglyndi, t.d. www.christian-depres-
sion.org/is
Fréttir
Markúsarguðspjall á SMS
„Hressandi" er lýsingin sem ungt fólk og eldra
velur hinni nýju SMS-útgáfu á Markúsarguð-
spjallinu sem tveir Norðmenn hafa gert. Reyndar
er það aðeins þriðjungur guðspjallsins sem búið
er að setja á SMS og spjallkóða.
Þeir Anders Bjornvand verkfræöingur og Jo-
hannes Holmedal, grafískur hönnuður, þýddu
guðspjalliö yfir á SMS. Þeir segja að löng hefð sé
fyrir að þýða Biblíuna yfir á tungumál sem fólk
skilur. SMS sé einmitt „tungumál" ungs fólks.
Markúsarguðspjall hafi orðið fyrir valinu af þvi að
það sé styst og þess vegna sé þýðingarvandinn
minni. Þá sé textanum þjappað saman auk þess
sem sleppt sé oröum sem þeir telja illskiljanleg
utan hins kirkjulega samhengis. Þó segjast þeir
félagar reyna aö vera eins trúir textanum og
hægt sé.
Ýmsum kunnuglegum orðum er þó breytt á
þessum forsendum að þau séu að verða illskiljan-
leg venjulegum Norðmanni. Þar má nefna að
lærisveinar verða að lærlingum og farísear að
guöfræöingum í hinu norska SMS-guðspjalli.
(www.kirkjan.is)
„I Can Qnly lmagine“ sterkur vitnisburður
Kristilega hljóm-
sveitin MercyMe í
Bandaríkjunum
hefur náö langt
meö lag sitt „I Can
Only Imagine,"
sem viöa hljómar
nú i almennum út-
varpsstöðuvum um
landið þvert og endilangt. Textinn fjallar umn það
hvernig það verði þegar við göngum viö hlið Jesú,
umkringd dýrð hans. í söngnum er spurt: Mun ég
dansa fyrir þig Jesús? Eða verða hljóður af undr-
un? Mun ég standa í nærveru þinni eða falla á
kné? Mun ég syngja Hallelúja, eöa verða orðlaus?
Höfundur lags og texta, Bart Millart, segir að
þegar faðir hans lést árið 1991 hefði hann skilið
við hann i vissu þess að hann færi á betri stað.
Þessi upphafssetning bjó með honum næstu árin
þegar hann hugsaði um orð fööur síns. Dag einn
áriö 1999 var hann kominn heim af tónleikum og
var glaðvakandi klukkan tvö að nóttu. Þá rakst
hann á þessi orö, „Ég get aðeins ímyndað mér," í
bókinni sinni. Tiu mínútum síðar var söngurinn
til. „Ég held aö hér fáum við aðeins að smakka
dýrð himinsins, til dæmis þegar við lofum Guð.
En ég velti því fyrir mér hvernig það verður þegar
ég sé Jesú augliti til auglitis." (www.mercymeli-
ve.com o.fl).
35