Búnaðarrit - 01.01.1977, Page 73
SKÝRSLUIl STARFSMANNA
67
nauta, sem ekki voru einnig rannsökuð á afkvæmarannsókna-
stöð. Kynbótanefnd samþykkti á fundi sínum 15. marz, að
nægjanleg reynsla væri komin á dætur Fáfnis N215—69003,
byggð á kynbótaeinkunn í árslok 1975. Var hún byggð á
skýrsluin yfir 106 dætur, en jafngildi 107, og var 109 stig
fyrir mjólk og 112 stig fyrir mjólkurfitu. Á sama fundi var
ákveðið að lienda sæði úr Dropa N212—69005. Var einkunn
hans að vísu byggð á afurðum 15 dætra aðeins, en jafngildi
19, og var 102 fyrir mjólkurmagn og 98 fyrir mjólkurfitu. Á
fundi nefndarinnar 1. des. var ákveðið að henda sæði úr
Skálda N217—69011. Þegar kynbótaeinkunn hans eftir 2.
ársfjórðung 1976 lá fyrir, þótti sýnt, að ekki væri leggjandi
upp úr því að nota hann áfram, en sambærileg einkunn fyrir
hann og þau naut, sem að framan er getið, mun liggja fyrir
á næstunni.
Um skoðun kvígna vegna afkvæmarannsókna vísast í
starfsskýrslu Erlendar Jóhannssonar, scm skoðaði kvíguhópa
undan ákveðnum nautum auk þess, sem undirritaður skoðaði
þær, sem til féllu á þcim nautgripasýningum, sem hann var á.
Er verið að vinna úr gögnum um skoðun kvígnanna. Þá fór
einnig fram skrifleg könnun hjá bændum á því, hvernig væri
að mjóllca kvígur undan einstökuin nautum, þar sem kvígur
undan ýmsum nautum voru bornar saman.
IV. Afkvœmarannsóknir á holdanautum. Á árinu lauk af-
kvæmarannsókn þeirri á 4 holdanautum Nautastöðvar Bún-
aðarfélags íslands, scm greint var frá í síðustu starfsskýrslu og
gerð var á Austurlandi. Hefur Páll Sigbjörnsson, sem þá var
ráðunautur Bsb. Austurlands, tekið saman bráðabirgða-
yfirlit yfir rannsóknina, en væntanlega verður skrifað nánar
um liana síðar. Afkvæmi Viska 72509 stóðu sig bezt, en þar
á eftir afkvæmi Dranuna 72508, en afkvæmi þeirra Kubbs
72511 og Tartaus 72510 lakar. Er því ákveðið að nota þá
Viska og Dramina áfram og velja 2 nautkálfa undan Viska
frá holdanautastöðinni á Hvanneyri á Nautastöðina, ef leyfi
fæst fyrir því frá Sauðfjárvcikivörnum.
Kynhótanefnd. Sömu menn áttu sæti í nefndinni og árið
áður. Voru lialdnir 4 fundir á árinu, þ. e. eftir uppgjör hvers
ársfjórðungs á skýrslum nautgriparæktarfélaganna. Er starf
nefndarinnar að mótast meir og betur en áður við það, að