Búnaðarrit - 01.01.1977, Page 86
80
BÚNAÐARRIT
beinandi á ölluin námskeiðunum. í Dalasýslu voru 7 fjögurra
daga námskeið, er sóttu um 40 manns. í Austur-Eyjafjalla-
hreppi eitt fimm daga námskeið, er sóttu 11 manns, og í
Suður-Múlasýslu eitt fjögurra daga í Breiðdal, er sóttu 10
manns, og eitt námskeið fyrir Velli og Skriðdal, það sóttu
8—10 manns.
Ymis ferdalög: Þann 26. janúar heimsóttuin við Magnús
Sigsteinsson, ásamt Hjalta Gestssyni og Guðmundi Stefáns-
syni frá Búnaðarsambandi Suðurlands, 10 liæi í 7 lircppum
Árnessýslu og gerðum samanburð á gæðum votheys í turn-
um og ílatgryfjuin. Fram koni, að turnvcrkað vothey hjá
reyndum bsendum var jafnara að gæðum en votliey í flat-
gryfjum. Síðasta dag marz ferðaðist ég með Hjalta Gestssyni
um Hrunamannalirepp, Skeið og Hraungerðislirepp til að
velja Jirúta á sæðingarstöð í Laugardælum. Greinilegt var,
að fóðrun sauðfjár var á allt annan vcg og betri, þar sem
gefið hafði verið smávegis af fiskmjöli með lélegum lieyjum
heldur en fóðurblöndur, og lakast ef blöndurnar voru inn-
fluttar. Þann 12. apríl völduin við Hjalti lirúta í Rangár-
þingi á sæðingarstöðina í Laugardælum. Ferðadagar í þágu
starfa urðu 69 á árinu.
Skrifstofan: Þar voru störf þau sömu og áður, persónuleg
viðtöl, skýrslugerðir, yfirfarin erindi frá stjórn Búnaðarfélags
íslands og landbúnaðarráðuneyti, unnin fjölrit til fundar-
halda og ráðunauta, símtöl og bréfaskriftir. Ég skrifaði, auk
starfsskýrslu og fréttatilkynninga til fjölmiðla, fjórar greinar
uin sauðfjársýningar í Búnaðarrit 1976, 2 greinar í Handbók
bænda og nokkrar grcinar I Frey.
Önnur störf: Ég starfa áfram í þeim nefndum, scm uin
getur í 89. árg. Búnaðarrits, er ekki liafa lokið störfum. í
útvarpsfræðslunefnd starfaði ég til loka Búnaðarþings 1976.
ítölunefnd Skútustaðalirepps hélt 6 nefndarfundi á árinu,
lauk ítölugerð í afréttir og lieimalönd hreppsins og mætti
á almennum svcitarfundi í Mývatnssveit þann 8. apríl til
skrafs og ráðagerða uin framkvæind ítölu. Einnig sat ég
ráðstefnu Rannsóknarráðs ríkisins um notkun loftljósmynda
þann 20. janúar og næsta dag ráðstefnu hj á saina að ila um „Þróun
sjávarútvegs.“ Ég vann 3ja daga viimuáætlun fyrir nemendur
Lindargötuskóla, í sambandi við heimsókn þeirra í febrúar