Búnaðarrit - 01.01.1977, Page 88
82
BÚNAÐARRIT
mikill. Minkur er mikill í sumum vörpum í Kaldrananes-
hreppi og þar víða miklar netalagnir. Talsverður tími fór í
samningagjörð um flugvargsmálið með samstarfsnefndum og
ráðuneyti. En vonandi er, að reglugerð frá 22. maí 1976 fái
einhverju áorkað í haráttu við varginn. Ég sat að venju alla
stjórnarfundi Æðarræktarfélags íslands á árinu og aðalfund,
og var þar fundarritari. Á árinu voru send út til æðarbænda
tvö drcifibréf og ýmis fjölrit varðandi æðarrækt. Dúnn, sem
berst til dúnhreinsunarstöðvar S.Í.S., fer ár batnandi. Um
þessi áramót var söluverð á dún kr. 30 000 á kg innanlands
án söluskatts, en um kr. 38 800 á kg handtíndur til útflutn-
ings. Mestur hluti dúnsins er fluttur út, og iná ætla, að fram-
leiðsla ársins 1976 nemi um 70 milljónum króna í gjaldeyris
öflun þjóðarbúsins.
Ég þakka samstarfsfólki ágæta samvinnu á árinu.
í janúar 1977,
Arni G. Pétursson.
II. Starfsskýrsla Sveins Hallgrímssonar
Starf initt hjá Búnaðarfélagi íslands á árinu 1976 hefur verið
með nokkuð öðrum liætti en undanfarið. Veldur þar mestu,
að Gísli Sverrisson, búfræðikandidat, hefur tekið við daglegri
umsjón með uppgjöri á skýrslum sauðfjárræktarfélaganna,
eins og nánar verður fjallað um síðar. Þessi breyting hefur að
vonum haft veruleg áhrif á starf mitt. Meiri tími hefur verið
til að sinna öðru en beinni vinnu við uppgjör, þ. e. ráðunauts-
störfuin, eins og raunar á að vera sjálfsagt. Hjá mér fer alltaf
mikill tími í viðtöl við menn, sem koma á skrifstofuna,
nefndarstörf alls konar og fleira þess háttar.
Saudfjárrœktarfélögin 1974—75. Greidd voru frainlög til
97 félaga, en þau voru 87 árið áður. Eftirtalin félög, sem ekki
sendu skýrslur fyrir árið 1973—74, sendu skýrslur árið 1974—
75 og nutu frainlags sainkvæmt búf járræktarlögum: Sf. Hraun-
hrcpps, Mýrasýslu, Sf. Smári, Mýrahreppi, V.-ísafjarðars.,
Sf. Hólmavíkur, Strandasýslu, Sf. Krikjuhvammshrepps,