Búnaðarrit - 01.01.1977, Page 98
92
BÚNAÐARRIT
liyggja upp með mér tillögur að lireyttu formi cða athuguu
á því. Yona ég að einhver tími vinnist til þeirra liluta.
Ársþing Landssamhands hestainannafélaga sat ég í Horna-
firði 29.—31. októher.
Dómari var ég ásamt fleirum, er 3 félagar í Félagi tamn-
ingarmanna tóku próf í hlýðniæfinguin í Rcykjavík, 10. okt.
Hagsinunasamtök hrossabænda héldu aðalfund sinn 26.
nóv. í Reykjavík, og flutti ég erindi þar um hagfræðilega
stöðu hrossabúskapar.
Afkvæmarannsakaðir voru 5 stóðhestar, og hefi ég minnst
á það hér að frainan.
Útgáfa ættbókar gengur lítið, utan þess mikla starfs, sem
ég lcgg í þá ættbók, sem gefin cr út í Hestinum okkar. Eg
bókaði unga graðfola með alfæsta inóti, cnda inikið sýningaár.
í ættbók voru færðir 46 stóðhestar og um 185 hryssur.
Á vegum Samliands ísl. sainvinnufélaga fór ég á meistara-
mót norskra íslandshestaeigenda í Seljord á Þelainörk í
Noregi og var þar dómari. Ferðin stóð dagana 3.—10. ágúst.
Fundir, myndasýningar og aðrar lieimsðknir. Með undirbún-
ingsnefnd að Fjórðungsmóti á Suðurlandi sat ég tvo fundi í
febrúar og maí. Kom á nokkra fundi hjá stjórn Stóðhestastöðva.
Viðhafnarkvöld mcð Iieiðursmerkjum til handa þeim, sem
riðu yfir Aineríku, var lialdið í Lækjarhvammi 28. sept., og
var mér boðið þangað. Ég inældi liross og dæmdi í tveimur
heimsóknum að Austurkoti í Saudvíkurlireppi. Ég sýndi
litskuggainyndir og stundum kvikinyndir og flutti oft erindi
auk skýringa á inynduin á eftirtölduin stöðum: Hjá Smára
í Hreppum og í Árnesi 13. febrúar, Fólkvangi 20. febrúar,
Bændaskólanum á Hvanneyri 15. marz, í Brún, Bæjar-
sveit, 28. marz, hjá Sörla í Hafnarfirði 18. inarz, á Dalvík
6. apríl, á Akureyri 7. ajiríl, á Húsavík 9. apríl, hjá Sleipni
á Selfossi 5. marz og 23. apríl, í Kópavogi 5. febrúar og
27. apríl, á Akranesi 24. október og á Bændaskólanuin á
Hólum 5. apríl og um kvöldið í Miðgarði. Hinn 1. apríl til-
kynnti búnaðarinálastjóri mér, að ég fengi ekki greidda eftir-
vinnu fyrir kvöldfundi hjá hestamannafélögum. Væri inér vel-
komið að mæta á slíkum fundum á kostnað félagsins í
vinnutíma. Ég tek ]iví, en sé ekki ástæðu til að slíta sam-