Búnaðarrit - 01.01.1977, Page 140
134
BUNAÐAHRIT
ýmsum vettvangi, en þó fyrst og fremst uin inál er varðar
bændur og búskap, hérlendis og erlendis, til birtingar í
Tímanum. Lítilsháttar efni lief ég og, samkvæmt bciðni, sent
til birtingar erlendis, og þegar ég dvaldi í Osló á síðasta hausti
flutti ég tvo stutta þætti í norska útvarpið, samkvæmt beiðni
þess, um sauðfé annan og hinn um hross á íslandi.
B. Búnaöarþáttur Ríkisúlvarpsins. Eins og um undanfarin
full 20 ár liafði ég umsjón með liúnaðarþætti Ríkisútvarpsins
með álíka sniði og að undanförnu. Fyrirfram samin erinda-
röð var að þessu sinni frá starfsmönnum bændaskólanna og
Garðyrkjuskólans, þar að auki erindi af ýmsum vettvangi.
Tilmæli forystu dagskrárinnar Jdaut ég og að taka til greina
og útvega það efni, sem almennast er ldustað á og varðar
búskap og bændur, en það eru raddir liænda, sem í viðtölum
tjá sig um búskap á heimaslóðum. Hef ég því að venju ferðast
að sumrinu til þcss að ná viðtölum við bændur og urðu þau
13 á liðnu ári, flest í Dalasýslu og Eyjafirði. Búnaðarþáttur-
inn var fluttur 50 sinnum á árinu, samtals rúmlega 900 inín.
Á árinu lieimsótti sjónvarpið mig tvisvar sinnum til við-
ræðu um inálefid bænda og búskap.
C. Grœnlenzk málefni. Síðan ég í lioði Grænlaudsverzlunar
lieimsótti Grænlendinga árið 1969, lief ég árlega verið beðinn
að sinna vissum lilutverkuin frá þeim slóðurn. Geta ber þess,
að umsjónarmaður verklegra mennta í Grænlandi, Hans
Símonsen, Itom hingað í maímánuði og dvaldi liér nokkra daga
til þcss að kynna sér náinsliáttu okkar í ýinsum verklegum
greinum, og þá fyrst og fremst á sviði búskapar. Búnaðarfélag
íslands liefur lofað að sjá fyrir námsaðstöðu fyrir að minnsta
kosti tvo Grænlendinga árlega á síðasta námsári þeirra, er
þar vilja leggja fyrir sig liúskap, en verklegt nám á því sviði
er þrjú ár eins og annað verklegt nám. Þá var ég til kvaddur er
þrenn græidenzk hjón dvöldu hér á landi I september í boði
Akureyrarbæjar, scm hefur Narssaq að vinabæ. Veitti ég
aðstoð til að þau fengju að gista bændabýli í Eyjafirði og
heimsækja önnur og svo til þess, að þau gætu verið við göngur
og réttir.
Þegar grænlenzka vikan var hér í aprílmáuuði, liitti ég
græidenzku gestina og sagði þeiin sitt af liverju um sveitir
okkar og Jiúskap heima Jijá aðalræðismanni þeirra liér.