Búnaðarrit - 01.01.1977, Page 176
170
BÚNAÐARRIT
anna, og telur, að jafnan beri að skoða varidlega, hvaða
þætti í þjónustustörfum Búnaðarfélags íslands, nýja jafnt
sem eldri, megi vinna með jafngóðum árangri úti á landi
eins og í aðalstöðvunum.
Greinargerð:
Búnaðarfélag íslands er ekki ríkisstofnun, heldur er það
byggt upp af félöguin bænda uin land allt og stjórnað af
kjörnum fulltrúum þeirra, Búnaðarþingi. Engin breyting á
stöðu þess eða liöguin getur því gerzt nema fyrir atbeina
Búnaðarþings.
Meginverkefni Búnaðarfélags íslands er að vera miðstöð
leiðbeiningaþjónustu landbúnaðarins, auk þess sem því liafa
verið falin af ríkisvaldinu ýmis önnur verkefni, svo sem fram-
kvæmd mikilvægra laga, sem landbúnaðinn snerta. Enn-
frcinur er samvinna og margslungin tengsl við ráðuneyti,
rannsóknarstofnanir og fleiri aðila, tengda landbúnaði, meðal
daglegra verkefna þess.
Á Jiað skal sérstaklega minnt, að leiðbeiningajijónusta land-
búnaðarins er engan veginn bundin við Búnaðarfélag íslands
í Reykjavík eitt sér, heldur er liún nú fyrst og fremst fram-
kvæmd úti í héruðunum, þ. e. á vegum búnaðarsambanda,
sem hafa í Jijónustu sinni um 40 ráðunauta. Segja má, að
vaxtarbroddur Jiessarar Jijónustu hafi um nokkurt skeið ein-
mitt verið á Jieim vettvangi, en ekki í miðstöð Búnaðarfélags-
ins í höfuðborginni, Jiar sem ráðunautar eru um Jiað bil 15
talsins og hcfur fjölgað mjög hægt á síðari árum. Af Jiessum
sökum er ljóst, að minni ástæða er til að flytja iniðstöð Bún-
aðarfélags Islands út fyrir liöfuðborgarsvæðið heldur en annarra,
sambærilegra stofnana. Efling leiðbeiningajijónustu búnaðar-
sambandanna á undanförnum árum liefur verið mjög ör, og
hafa Jiegar myndazt nokkrar öflugar miðstöðvar hennar, svo
sem á Akureyri, Selfossi og víðar. Er slíkt injög æskileg Jiróun
og í anda viðurkenndrar byggðastefnu.
Suinir starfsjiættir Búnaðarfélags Islands eru Jiess eðlis að
þá má rækja með jafngóðum árangri frá aðsetri utan Reykja-
víkur. Er sjálfsagt að liuga vel að slíkum mögulcikum, Jiegar
tækifæri gefast.