Búnaðarrit - 01.01.1977, Page 189
BÚNAÐARÞING
183
þess, að þar gæti mjög inikils misræmis urn skattlagningu
eftir því, hver í hlut á. Eigandi þriggja íhúða eða færri sleppur
við söluhagnað af íbuðunum, liaíi hann átt þær í finnn ár eða
lengur, en seljandi bújarðar er liáður allt öðrum og iniklu
strangari ákvæðum. Yirðist sem ekki sé tekið tillit til þess,
að land bújarðar, ræktað og óræktað, útihús og íbúðarhús,
er að öllum jafnaði ein heild. Hér virðist liallað svo á bændur,
að alls ekki verði við unað.
Búnaðarþing vill og benda á að athuga þurfi betur m. a.
eftirtaldar greinar og töluliði frumvarpsins:
1. 5. tl. 4. gr. uin skattfrelsi félaga og stofnana, er vinna í
almannaþágu og án arðsjónarmiða.
2. 10. tl. 7. gr. um skattskyldur samvimiufélaga af því fé, sem
er séreign félagsmanna og fært er í stofnsjóði.
3. 32. gr. um fyrnanlegar eignir. Þar er ræktað land ekki
talið með.
4. 62. gr., en þar er gert ráð fyrir einungis tveiinur skatt-
þrepum.
5. 70. gr. um eignarmat á búpeningi og fóðurbirgðum.
Þá telur þingið, að fráleitt sé að fela einum maiini jafnmikla
ákvörðunartöku um framkvæmd skattalaga og víða kenmr
fram í nefndu frumvarpi.
Með tilliti til þess, sem nú hefur verið verið gctið um ýmsa
ágalla frumvarps þessa, og óvissu um túlkun á ýmsum þáttum
þess, ef samþykkt yrði óbreytt, skorar Búnaðarþing á ríkis-
stjórnina að draga frumvarp til laga um tekju- og eignarskatt
til haka að sinni. Málið verði atliugað hetur og rækilegar af
fjárliags- og viðskiptanefndum hcggja deilda Alþingis í
trausti þess, að ji;er leiðrétti það misræmi og lagi þá ágalla,
sem virðast vera á nefndu frumvarpi að því, er tekur til land-
húnaðar og hændastéttarinnar.
II. Búnaðarþing samþykkir að kjósa þriggja manna nefnd
til að yfirfara fruinvarp til laga um tekjuskatt og eignarskatt,
einkanlega þá þætti þess, er varðað gcta hæildur, og gera
tillögur um breytingar og úrhætur. Nefndin skili áliti sínu
til þeirra nefnda Alþingis, er fara með athugun frumvarpsins,
fyrir 31. marz n.lc., og eigi einnig viðræður við nefndirnar í
því skyni að tryggja framgang tillagna sinna.