Búnaðarrit - 01.01.1977, Page 191
BÚNAÐARÞING
185
skipa ncfnd til ]>ess að gera tillögnr um úrlausn á vandamálum
Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Þingið lagði áherzlu á, að
nefnd þessi skiluði áliti hið fyrsta.
Frá því hefur verið skýrt, að nefndin, sem vinnur að atliug-
unum á málefnum Stofnlánadeildarinnar, leggi til, að lagt
verði 1% húvörugjald á óniðurgreitt lieildsöluverð landbún-
aðarvara. Gjaldi þessu verði varið til að jafna lánskjör tekinna
og veittra lána deildarinnar ásamt núverandi framlciðenda-
gjaldi. Áríðandi er, að Alþingi það, er nú situr, lögfesti þessa
tillögu um búvörugjaldið ásamt mótframlagi ríkissjóðs, svo
að ekki þuríi að grípa til verðtryggingar á útlánum Stofnlána-
deildarinnar og auka á aðstöðumuninn hjá þeim bœndum,
sem nú standa í framkvæmdum, og hinum, sem notið liafa
liagstæðari lána.
Þá skal bent á, að þar sem stofnfjármagn vísitölubúsins er
stórlega vantalið og fjármagnskostnaður því að verulegu
leyti greiddur af launum bóndans, verðnr að sjá til þess, að
vaxtakjör stofnlána til landbúnaðarins verði bætt, og eigi
verður séð, hvernig landbúnaðurinn geti staðið undir verð-
tryggingu á verðbólgutímum.
Lán til jarðakaupa hafa jafnan verið lág. Árið 1975 voru
þau 800 þús. kr., en voru hækkuð í 1 600 þús. kr. á árinu
1976 og veitt til 20 ára með 18% vöxtum. Leggja verður
mikla áherzlu á að auka jarðakaupalánin verulega, svo að
eigendaskipti á jörðuin verði ekki jafnmikið vandamál og
nú er. Því er lagt til í ályktuninni, að þau verði hækkuð í
70% af matsverði jarðanna.
Bústofnskaupalánin eru nú veitt til kaupa á nautgripum og
sauðfé. Upphæð þeirra er sein svarar skattmati á hálfu vísi-
tölubúi. Lánin eru aðeins veitt tvö fyrstu búskaparárin. Þau
eru til 6 ára með 12% vöxtum. í ályktuninni er lagt til, að
]>au verði veitt þrjú fyrstu búskaparár viðkomandi bónda, ef
]>að tekur ]>á það langan tíma að koina sér upp bústofni, sem
nemur 60% af stærð vísitölubúsins, og lánstíminn verði lengd-
ur í 8 ár.
Lán til jarða- og liústofnskaupa koma fyrst og frcmst í
hlut frumbýlinga. Því er áríðandi, að ]>au verði mcð góðum
kj örum.