Búnaðarrit - 01.01.1977, Page 216
210
BÚNAÐARRIT
53% lieyja á Vestfjörðum, 35% á Vesturlandi og 25% á
Suðurlandi, en í III. ílokki, ]). e. léleg eða afleit, eru 12%
lreyja á Vestfjörðum, 34% á Vesturlandi og 25% á Suður-
laudi. Þessar rannsóknir sýna, að bændur þurfa að gefa mjög
inikið af kjarnfóðri með þessum lélegu heyjum. í mörguin
lilfelluin getur leikið vafi á því, hvaða fóðurlilöndu eða livers
konar fóður lieppilegast er að gefa. I því sambandi er sjálf-
sagt fyrir liændur að kynna sér gaumgæfilega leiðbeiningar
ráðunauta í þeim efnum, bæði ráðunauta Búnaðarfélags ís-
lands og héraðsráðunautanna. Eitt vil ég þó nota tækifærið
til að minnast á. Venja cr að láta lakasta lieyið til fjárins,
og þá ríður á að gefa eggjahvíturíkt fóður með því, t. d.
loðnumjöl eða fiskimjöl, en láta ekki nægja kornfóður eða
fóðurhlöndur ineð eggjahvítu úr jurtaríkinu sem eina eða
aðal eggjahvítugjafann.
Grœnfóduruppskeran var víðast livar með allra bezta inóti,
en á stöku stað spratt grænfóðrið illa, vegna þess að jarð-
vcgur varð of vatnsósa. Grænfóðurræktin er eitt mikilvæg-
asta framfaraspor í íslenzkum landbúnaði síðasta aldarfjórð-
ung. Það lengir hið stutta sumar okkar ómetanlega, auð-
veldar ltændum að halda nyt í kúm á liaustin og sparar
kjarnfóður og gefur bændum tækifæri til þess að bæta rýrari
hluta lamba sinna ineðan beðið er eftir að fá þeim slátrað
og gefur, a. m. k. sunnanlands, tækifæri til að lengja slátur-
tíðina ölluin til hagsbóta, nógu hár er sláturkostnaðurinn
samt.
Kornrœkl var stunduð á tveim stöðum í Rangárvallasýslu,
Þorvaldseyri og Sámsstöðum, og á Skriðuklaustri. Alls var
sáð byggi í 11 lia og varð heildaruppskeran 20 sinálestir,
mest á Skriðuklaustri, 33 tunnur af lia, en minnst á Sáms-
stöðum, 12 tunnur á lia.
Hardþurrkað gras og grœnfóður. Framleiddar voru 7536
sinálestir af grasmjölskögglum, 330 smálestir af grasmjöli og
431 sinálest af heykökum eða samtals 8297 smálestir af hrað-
]>urrkuðu fóðri. Er það rúmlega 30% aukning frá árinu 1975.
Framleiðslan skiptist á verksiniðjurnar sem hér segir: