Búnaðarrit - 01.01.1977, Page 223
LANDBÚNAÖURINN
217
voru nettó fjölskyldutekjur 134 búreikningsbænda af land-
búnaði og annari vinnu árið 1975 kr. 1.359 þúsund. í þessari
fjárbæð eru vinnutekjur við annað en landbúnað kr. 127
þúsund og auk þess áætlaðir vextir af eign bænda kr. 332
þúsund, ef reiknað er með 10% vöxtum, cn eignainat er
óeðblega lágt, þ. e. aðeins afskrifað fasteignamat á fasteign-
um, skattmat á búfé og afskrifað kaupverð véla.
Mikil verðliækkun varð á rekstrarvörum landbúnaðarins
frá 1974 til 1975, en magn þeirra stóð því nær í stað. Áburð-
arnotkun minnkaði um tæp 2%, en kjarnfóðurnotkun óx um
tæp 2%. í krónutölu hækkaði áburðurinn á búreikningsbú
um kr. 180 þúsund eða 71%, en kjarnfóður um 50%. Véla-
kostnaður hækkaði hins vcgar um 59%, en framleiðslutekjur
bækkuðu aðeins um 41%. Fjölskyldulaun af landbúnaði
hækkuðu aðeins um kr. 222 þúsund eða 22%, sem er miklu
lakari útkoma en 1974.
Athyglisverðasta breytingin á afkomu búreikningsbænda,
ef þeim er skipt eftir bútegundum, eins og Búreikningastofan
gerir, er sú, að fjárbúin sýna nú mun betri afkomu en kúabúin,
og blönduðu búin eru á milli, en 1969 liöfðu bændur á kúa-
búum 32% liærri fjölskyhlulaun en bændur á fjárbúum, og
þá höfðu bændur á blönduðum búum mun minni fjölskyldu-
tekjur en fjárbændurnir. Næstu 4 ár liafa kúabændur liærri
fjölskyldutekjur en fjárbændur, og jafnan á þeim árum hafa
bændur á blönduðum búum lægri fjölskyldutekjur en fjár-
bændurnir. Fyrst 1974 fá bændur á fjárbúum aðcins hærri
fjölskyldutekjur en kúabændur, og á næsta ári vex munur-
inn fjárbændum í hag, svo að þá fá þeir síðarnefndu 18%
liærri fjölskyldutekjur en lcúabændur, og þá loksins tekst
þeim, sem blönduð bú Iiafa að ná hærri tekjum en kúabændur.
Ymsar ástæður munu valda þessari breytingu. Mest er
frainförin hjá blönduðu búunum og má telja víst, að eig-
endur jieirra búa hafi lært af búreikiiingshaldinu. Þau bú
hafa á 6 ára tímabili stækkað um 19% í 503 ærgildi, cn kjarn-
fóðurgjöf aukizt aðeins um 5% og áburðarnotkun um 6%.
Fjárbúin stækkuðu á sama tíma um 24% í 419 ærgildi,
kjarnfóðurgjöf óx uin 6% og áburðarnotkun um 16%. Kúa-
búin stækkuðu á saina tíma um 31% eða í 659 ærgildi, kjarn-
fóðurgjöf óx um 21% og áburðarnotkun um 17%. Á sarna