Búnaðarrit - 01.01.1977, Qupperneq 499
AFKVÆMASÝNINGAlt Á SAUÐFÉ
493
B. 69-271} Guðbrandar Björnssonar á Smáhömrum er heima-
alin, f. Spakur 268, m. Gulla 326, sem hlaut I. verðlaun fyrir
afkvæmi 1970 og 1972, sjá 87. árg., bls. 451. Ærin er svartkoll-
ótt, nokkuð langvaxin og sterkleg ær, en ekki nógu fyllt upp
í klofið. Afkvæmin eru kollótt, nema ein ærin hyrnd, tvö grá,
hin hvít. Garpur cr kjötmikill hrútur, en fullháfættur, Bjarmi
þolandi I. verðlauna kind, annað hrútlamliið vöðvafyllt, en
hæði gölluð á ull, dætur frjósamar. 69-278 er vel frjósöm og
hlaut árið 1975 6,8 í afurðastig.
69-278 hlaut II. verdlaun fyrir afkvœmi.
C. 71-403 Guðbrandar á Smáhömrum er heimaalin, f. Ljóini
248, m. Nett 253. Hún er hvít, kollótt, þéttvaxin og holdstinn
ær, með sterka fætur og ágæta fótstöðu. Afkvæmin eru livít
og kollótt, Þór er kröftugur hrútur, hlaut I. verðlaun B á
héraðssýningu 1976. Dæturnar cru enn ekki nógu frjósamar,
en gera góð lömb, hrútlambið sæmilegt lrrútsefni að gerð, en
fullgulur, gimbrin ekkert sérstök. Árið 1975 hlaut ærin 6,9 í
afurðastig.
71-403 hlaut II. verðlaun fyrir afkvœmi.
D. 71-405 Björns H. Karlssonar á Smáliömrum er heimaalin,
f. Ljómi 248, in. Skál 320. Ilún er kollótt, vel hvít og ágætlega
gerð ær, með sterka fætur og góða fótstöðu. Afkvæmin eru
hvít, kollótt, nokkuð misjöfn að gerð og sum gul ó ull. Moli er
þroskamikill hrútur, önnur gimbrin allgott ærefni. 71-405 er
ágætlega frjósöin og hlaut árið 1975 6,9 í afurðastig.
71-405 lilaut II. verðlaun fyrir afkvœmi.
E. 71-408, lijá sama eiganda, er heimaalin, f. Ljómi 248, m.
369. Ilún er hvít, kollótt, snotur ær, ágætlega frjósöm og
afurðasæl. Afkvæmin eru kollótt, eitt gróhílduílekkótt, liin
Iivít, ein ærin mjög gul á ull, hrútlambið ekki hrútsefni.
Ærnar eru frjósamar, með djúpa, ekki útlögumikla bringu, en
iniklar afurðaær. Himmi er jafngerður, kröftugur lirútur og
vel hvítur ó ull. Árið 1975 hlaut ærin 8,9 í afurðastig.
71-408 hlaut I. verðlaun fyrir afkvœmi.
F. 71-347 Páls Traustasonar á Grund er heimaalin, f. Sómi
64-259, m. 89. Hún er hvít, kollótt, virkjainikil og sterkleg