Búnaðarrit - 01.01.1977, Page 548
542
BUNAÖARRIT
höfuðið breitt og sérlega ])róttlegt. Brynja er klettjmng, hefur
mjög rúman hrjóstkassa og er ágætlega holdfyllt. Afkvæmin
eru öll livít, hyrnd, gul á liaus og fótum, ullin ekki laus við
gular illhærur. Tvævetri hrúturinn, Þokki, er góð I. verðlauna
kind og dæturnar klettþungar holdakindur. Lambhrúturinn
er slakt lirútsefni, en gimbrin fagurt ærefni. Brynja hefur
verið þrisvar tvílembd á 3 árum og er með afurðaeinkunnina
6,8 s.l. 2 ár.
Brynja 72-010 hlaut I. verdlaun fyrir afkvæmi.
C. Fenja 70-067 Árna Magnússonar er heimaalin, f. Spakur,
m. Þoka. Hún er livít, hyrnd, kolótt á haus og fótuin, ullin
sæmilega mikil, en gulkuskotin, fæturnir grannir og rétt settir.
Fenja er rýmismikil og stórgerð. Afkvæmin eru öll Iivít, hyrnd,
kolótt, ljós eða dröfnótt á haus og fótum, flest ullargóð, hafa
framstæða, djúpa bringu, eru útlögumikil og löng, Fjögurra
vetra sonurinn, Fífill, er holdakind og þungur miðað við
stærð, hefur afhragðs hak-, mala- og lærahold. Dæturnar,
Vala og lfösk, eru jafnvaxnar, Vala er fögur, en Ilösk snotur og
holdgóð, enda þótt hún sé mylk. Annar lambhrúturinn er
sæmilegt hrútsefni. Fenja hefur vcrið fjórum sinnum tví-
lembd á 5 árum og er með afurðaeinkunnina 6,6.
Fenja 70-067 hlaut I. verðlaun fyrir afkvœmi.