Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 33
BUNADARRIT
31
og þrátt fyrir kréppu, ot> kreppuuppgjör, liætast ár-
lega við túnin að meðaltali 978.1 ha og árið 1940 eru
þau orðin 35973 ha. Eftir 1940 fer vinnu með enn
stærri vélum og mikilvirkari að gæta meira við túna-
stækkunina. Þá stækka þau að meðaltali á ári um 940
ha og eru í árslok 1950 orðin 45368 ha. Nýræktin hef-
ur því alltal’ verið að færast í aukana — vaxa — enda
þótl atvinna við sjávarsíðuna hafi á siðasta áratugn-
um, sérstaklega árin 1942—45, dregið unga fólkið til
sín, og nýræktin því orðið minni en ella hefði mátl
vænta. Árið 1950 varð nýræktin yfir 2160 ha og liefur
aldrei á einu ári orðið eins mikil.
Samhliða því, sem túnin hafa verið stækkuð, liafa
gömlu túnin líka verið slcttuð. Fyrir aldamót var búið
að slétta í túnunum 2679 ha. Síðan um aldamót er lniið
að slétta túnasléttur, sem með því sem sléttað var
fyrir aldamót, eru sem næst því jafn stórar og stærð
allra túnanna var aldamótaárið. Mætti af því draga
j)á ályktun, að nú væru öll tún landsins véltæk og
slétt, en svo er þó ekki. Töluvert milcið af gömluin
sléttum hefur verið sléttað á ný, surnar al' þvi að þær
höfðu þýfst, en aðrar af því að þær voru með svo
háum og kröppum hryggjum, á rnjóurn beðum, að
ekki var hægt að nota vélar nema takmarkað við
heyskap á þeim. f rauninni er því sama landið sléttað
tvisvar að einhverju leyti, og stærð þess lands er slétt-
að hefur verið minna en tölurnar segja. Eftir tún-
þýfisskýrslum er enn eftir að slétta töluvert af tún-
um, sérstaklega í suinum héruðum landsins. Lítur út
fyrir að það muni vera nálægt 3600 ha eða um einn
jjrettándi af stærð allra túnanna, eins og þau eru nú.
Það var heitið hærri styrk fyrir að slctta túnþýfi, en
að breyta óræktuðu landi í tún, og er svo að sjá sem
það hafi eitthvað örfað menn til þess að ráðast á
túnþýfið, eins og sjá má af eftirfarandi tölum: