Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 84
82
BÚNAÐARRIT
við búin, sem njóta styrks samkvæmt búfjárræktar-
lögunum, þ. e. þunga sláturlambanna á fæti og kjöt-
prósentu dilkanna. Þungi er gefinn á ánum haust og
vor og sömuleiðis þungi þeirra lamba á fæti, sem sett
eru á.
Tafla 10 sýnir vænleika ánna og ásetningslamb-
anna.
Tafla 10. Útdráttur úr skýrslu Laxamýrarbúsins
árin 1948- —49 og 1949- -50.
Meðalþungi ásctnings-
Meðalþungi Pyngst Léltust lamba i okt. kg
Ár Tala ánna kg ær i ær i hrútar gimbrar
ánna okt. inaí okt. kg okt kg tala tala
1948—49 60 62,4 67,9 73 52 6 47,5 13 35,6
1949—50 60 60,9 68,4 71 53 4 52,0 11 41,5
Fyrra árið voru 34 ærnar tvílembdar og tvær al-
geldar. Hinar áttu 1 lamb. Sex lömb fórust. Lömbin
voru rýr haustið 1949, eins og sést af þunga ásetnings-
lambanna (tafla 10). Hið kalda vor 1949 hefur eflaust
átt sinn aðalþátt í rýrleika lambanna um haustið.
Ærnar eru líka léttari haustið 1949 en árið áður. Þær
hafa ekki verið fóðraðar nógu lengi fram eftir, til
þess að þær sjálfar og dilkarnir biðu ekki tjón af
gróðurleysinu og kuldanum. Síðasta árið voru 31 ær
tvílembd, 1 þrílembd, 2 ær létu lömbunum, en hinar
voru einlembdar, 2 lömb dóu í fæðingu og 2 vantaði
af fjalli. Lömbn virðast hafa verið vel væn haustið
1950, eftir ásetningslömbunum að dæma.
Þessi tvö ár hafa 22 kynbótahrútar verið seldir frá
Laxamýri. Tólf þeirra hafa farið í fjárskiptin, en
hinir í Þingeyjarsýslu milli Fljótanna. Það er ástæða
til þess að gera sér góðar vonir um árangur af fjár-
ræktarstarfi Jóns H. Þorbergssonar. Við fjárskiptin
fékk hann eðlisgott fé, en hitt er þó eigi síður mikils
vert, að Jón á Laxamýri er fyrir löngu landskunnur
sem snjall dómari á sauðfé og ágætur fjárræktar-