Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 136
134
BÚNAÐARRIT
Bárðardal og úr öngulsstaða- og Hrafnagilshreppum.
Þetta fé er því ættað af Vestfjörðum, úr Jöltulfjörðum,
Vestur-ísafjarðarsýslu og Vestur-Barðastrandarsýslu.
Sýningin var ágætlega sótt. Sýndir voru 75 hrútar.
Þeir voru allvænir, en yfirleitt of illa gerðir. Aðeins 6'
hlutu I. verðlaun (Tafla A), en 27 voru dæmdir ónot-
hæfir. Tveir fyrstu verðlauna hrútarnir voru keyptir
frá Hróarsstöðum í Fnjóskadal, báðir ágætir á hold,
en annar þeirra, Spakur í Villingadal, er of grófullaður
A Hróarsstöðum hefur verið notaður ágætur hrútur
af gamla Bægisárstofninum, Þór að nafni, en ekki
var vitað, hvort þessir hrútar voru synir hans. Margir
hrútar í Saurbæjarhreppi voru hrottalega háfættir og
alltof holdþunnir. Þarf að gera þar mikið ræktunar-
átak til þess að ná upp vel gerðum fjárstofni.
Glæsibæjarhreppur. Sýningar þar voru sæmilega
sóttar. Féð í innhluta sveitarinnar er ættað úr Dýra-
firði cn í úthluta Kræklingahlíðarinnar og á Þela-
mörk er það ættað úr Mývatnssveit. Hrútarnir i
Glæsibæjarhreppi eru margir góðir og sumir ágætir. Af
37 hrútum sýndum hlutu 11 fyrstu verðlaun eða 30%,
en 4 voru ónothæfir. Dýri í Lögmannshlíð er þolsleg
holdakind og býr yfir sæmilegri kynfestu eftir son-
um hans að dæma, er sýndir voru með honum. Dalur
í Höfða er ágætur hrútur. Kökkur á Einarsstöðum frá
Grímsstöðum við Mývatn er afbragðs vel gerður og
var talinn bczti hrúturinn í hreppnum. Gráni í Garðs-
horni, frá Ytri-Neslöndum, er mjög kostamikill hrútur.
Bakkus Benedikts á Ytri-Bægisá var að sjá einhver
glæsilegasti hrúturinn á sýningunni, en hann er of há-
fættur, tafla A.
öxnadalshreppur. Þar var vel sótt sýning og hrút-
arnir framúrskarandi vænir og margir mjög vel gerð-
ir. Þeir voru flestir ættaðir úr Mývatnssveit. Vetur-
gömlu hrútarnir 20 að tölu vógu að meðaltaíi 83.4
kg. Er það meiri meðalþungi en i nokkrum öðrum