Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 144
142
B Ú N A Ð A R R I T
miklum kostum búinn, en þó fullbakmjór. Prúður
Hjartar á Álfatröðum, frá Magnússkógum, er ágæt-
lega gerður og sæmilega vænn. HnífiII Baldvins á
Álfatröðum er einnig vel gerður.
Hörðdælir eru sæmilega settir með hrútastofn sinn,
eftir því sem um er að gera, þegar hrútar eru keyptir
lir fé, sem búið er að blanda í graut.
Miðdalahreppur. Sýningar voru þar vel sóttar og
hrútarnir heldur betur gerðir cn í Hörðudalshreppi.
Að öðru leyti má flest það sama segja um hrútana í
báðum þessum hreppum. Hlutfallslega fleiri hlutu þó
I. verðlaun í Miðdölum eða 13 al' 56. Béztu hrútarnir
voru þessir: Kistill Jósefs á Oddsstöðum, frá Stað á
Reykjanesi, Mangi í Miðskógi, frá Magnússkógum,
Kollur á Harrastöðum, frá Snartartungu, Þrýstinn á
Breiðahólsstað, frá Gautsdal í Geiradalshreppi og Surt-
ur í Geirshlíð frá Garpsdal. Miðdalahreppur stendur
sízt lalcar að vígi en Hörðudalshreppur með að ná
upp sæmilegu fé.
Haulcadals- og Laxárdalshreppur. í þessum hreppum
voru raunverulega ekki hrútasýningar að þessu sinni,
en verða haldnar 1952. Bændur frá nokkrum bæjum í
Laxárdalshreppi sunnan Hvammsfjarðargirðingar og
einn bóndi úr Haukadal komu þó ineð hrúta sína á
sýninguna í Miðdölum og fengu þá dæmda. í þeim
hópi voru tveir ágætir I. verðlaunahrútar, tafla C.,
Gaukur í Köldukinn í Haukadal, frá Grænumýrar-
tungu, í föðurætt líklega frá Laugabóli, og Dóri á
Rútsstöðum í Laxárdal frá Arngerðareyri. Báðir voru
þessir hrútar ræktarlegir og fagrir, en Gaukur tók
þó Dóra fram að ýmsu leyti.
Mýrasijsla.
Féð í þeim hreppum Mýrasýslu, sem nú tóku þátt
í hrútasýningum, er ættuð af svæðum, sem nýlega
liafa skipt um fé. Flest er það úr Húnavatnssýslum,