Búnaðarrit - 01.01.1952, Síða 165
BÚNAÐARRIT
163
Föðurætt: F. Börkur nr. XXVI Ólafar Vigfúsdóttur,
Syðra-Álandi. Ff. Hnykill nr. XVIII Þorsteins Þórar-
inssonar, Holti. Fm. Frú nr. 195 Ólafar Vigfúsdóttur,
S.-Álandi. Fff. Grettir nr. VIII ólafs Þórarinssonar,
Laxárdal. Ffm. Hnota nr. 120 Þorsteins Þórarinsson-
ar, Holti.
Móðurætt: M. Hnota nr. 239 Gríms Guðbjörnssonar,
Syðra-ÁIandi. Mf. Grænir Gríms Guðbjörnssonar, S.-
Álandi, frá Páli Jónssyni frá Grænavatni í Mývatns-
sveit.
Allir þeir forfeður Roða, sem hér eru skráðir, hafa
hlotið I.'verðlaun á sýningum, nema Grettir nr. VIII,
er hlaut II. verðlaun. Formæður Roða, sein hér eru
skráðar, voru allar rígvænar og miklar afurða ær, t. d.
vó Frú 4 vetra 80 kg að haustlagi. í Roða er mikið
af blóði frá Holti og Laxárdal og einnig nokkuð af
Grænavatns og S.-Álands blóði. Eins og tafla 1 D
sýnir, eru afkvæmi Roða fram úr skarandi væn, ágæt-
lega bakbreið og lágfætt, en hafa tæplega eins mikið
brjóstrými og afkvæmi Holts og Laxárdalshrútanna,
sem nú voru sýndir, Báðir veturgömlu hrútarnir, synir
Roða, hlutu I. verðlaun. Fjögur lömbin undan Roða
voru tvílembingar, 2 hrútar og 2 gimbrar. Roði er
sjálfur fram úr skarandi vænn og fagur einstaklingur.
Hjalti Gestsson lýsir afkvæinum Roða þannig: „Af-
kvæmi Roða eru mjög lik, þ. e. sýna mjög mikla kyn-
festu. Þau hafa öll ágæt bakhold og sum fram úr skar-
andi, lærvöðvar eru mjög vel þroskaðir á þeim öllum
og á sumum alveg fram úr skarandi. Malir eru fram
úr skarandi holdgóðar, beinar, en fremur stuttar.
Bringan er mjög breið og sæmilega framsett á þeim
flestum. öll afkvæmi Roða hafa gulan haus og gula
fætur, frið með afbrigðum, en mörg dálítið gul á
lagðinn."
Roði hlaut I. verðlaun fyrir afkvæmi.