Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 187
BCNAÐARRIt
185
framkvæmdar á árinu, en ælla má, að þær séu svip-
aðar og undanfarin ár. Að vísu voraði seint. Jarða-
bótavinna byrjaði Vz—1 mánuði seinna en oft áður.
En haustið var lílta gotl og unnið fram i nóvember
víða, og vannst með því upp að nokkru leyti sá tíini,
er tapaðist að vorinu. En annað kom til, sem mun sýna
það, þegar skýrslur liggja fyrir, að afköstin í sumar
verða svipuð og áður, sérstaklega eftir skurðgröf-
urnar. En það er af því, að betur gekk að sjá fyrir
varahlutum, svo að vinnustöðvana vegna hörguls á
þeiin gætti minna í sumar en undanfarin ár.
Þess er þó ekki að dyljast, að jarðabæturnar, sein
gerðar eru árlega, svara ekki til afkasta vélakostsins,
sem til er orðinn í landinu. Þetta kemur af því, að
ræktunarsamböndin ern of litil, ná yfir allt of títil
svæði. Vegna þess vinna fjölda margar jarðyrkjuvélar
aðeins að vorinu og haustinu, en eru látnar standa og
hvíla sig um sláttinn. Þetta þarf að breytast. Það þarf
að sameina ræktunarsamböndin, svo að starfssvið
hvers eins vcrði það stórt, að nægilega mikið sé að
gera fyrir vélakostinn, meðan jörð er þið og vinnufært
er. Þá lyrst verður vinnan það mikil með hverri ein-
stakri vélasamstæðu, að hún þoli að bera uppi eðli-
legar afskriftir og fyrningar, án þess að verða of dýr
fyrir þá, sem hana þiggja.
Fjárskiptin héldu áfram. Var nú lógað öllu sauð-
fé milli Hvalfjarðar og Rangár, og verður það svæði
sauðlaust árlangt. Lömb voru flutt á svæðið, sem
lógað var á í fyrra — Borgarfjörðinn —, og er þá
talið, að niðurskurðinum ljúki að ári, en þá verður
lógað í Rangárvallasýslu og Mýrdal. Ætlu þá allir
að verða búnir að l'á fé aftur haustið 1953. En þá
hafa fjárskiptin gengið eftir áætlun þar lil í haust.
Þá kom þurra mæðin altur upp í fé á Hóimavík og
Ósi í Steingrímsfirði. Var fé þá drepið þar og í
næsta nágrenni, og reyndust sjö kindur sjúkar. Úr