Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 192
190
B Ú N A Ð A R R I T
verzlanir. Þótt þar sé ýmsu áfátt erin, orkar það ekki
tvímælis, að mikið hefur hér á unnizt og að bændur
Iandsins og þjóðin öll á Sveini þar þökk að gjalda.
Búnaðarfélag Islands hefur löngum ýtt framkvæmd-
um af stað, en síðan látið þá bera þær uppi, sem að
þeim hafa slaðið, eins og rjómabúin gömlu, mjólkur-
búin, smjörsamlögin o. s. l'rv. Og þótt það nú kveðji
Svein og þakki honum vel unnið starf, þá veit það, að
hann sem framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs hefur
aðstöðu til að fylgjast með vexti þessara barna sinna
og mun gera það, og það veit líka, að þurfi það á að-
stoð Sveins að halda, er hann ætíð boðinn og búinn til
að leggja Iiönd að hverjn því verki, sem hann heldur,
að megi koma heildinni að gagni.
Að öðru leyti eru starfskraftar félagsins óbreyttir,
enda starfið svipað og vexúð hefur.
Hjá búnaðarsamböndiinum hafa þessir menn starf-
að að leiðbeiningum í jarðrækt og jarðabótamæl-
irigum:
Hjá Búnaðarsambandi Kjalarnesþings: Ivristófer
Grímsson ráðunautur.
Hjá Búnaðarsambandi Borgarfjarðar: Hjálmar Jóns-
son ráðunautur.
Hjá Búnaðarsambandi Snæfellsnes- og Hnappadals-
sýslu: Gunnar Jónatansson ráðunautur.
Hjá Búriaðarsambandi Dalamanna: Bogi Steingrínxs-
son.
Hjá Búnaðarsambandi Vestfjarða starfaði örnólfur
Örnólfsson ráðunautur hluta af árinu, cn honum til
aðstoðar voru þessir mælingamenn: óli Annaníasson, ý
Jóhannes Arason, Egill Ólafsson, Elías Melsteð, Jó-
hannes Davíðsson, Guðmundur Jónsson, Hjörtur Slur-
laugsson, Páll Pálsson og Guðmundur Majasson.
Hjá Búnaðarsambandi Strandamanna: Sigmundur
Guðmundsson, Ingimundur Ingimundarson og Bene-
dikt Grímsson.