Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 250
248
BÚNAÐARRIT
byggingu og I. verðlaun. Hún mjólkaði síðaslliðin 3
ár, cða frá því að hún bar að I. kálfi, að meðaltali
3219 kg, 4.55% fitu og 14656 fitueiningar, Dætur
hennar, Huppa og Tungla, l'engu II. verðlaun, en stóðu
nærri I. verðlaunum.
Ilinar kýrnar, sem kepptu til I. heiðursverðlauna,
voru þessar.
1. Leira 1, Ingibergs í Skammadal, Hvammshreppi,
V.-Skaft.
2. Laufa 2, Stefáns á Ásólfsstöðum, Gnúpverjahr.,
Arnessýslu.
3. Frekna, Ólafs í Oddgeirshólum, Hraungerðishr.,
Árn.
4. Brynja 21, Ágústs á Brúnastöðum, Hraungerðis-
hreppi, Árn.
5. Búhót 25, Guðjóns í Hrygg, Hraungerðishr., Árn.
Lcira stóð næst því af þessum kúm að fá I. heiðurs-
verðlaun fyrir afkvæmi, en allar höfðu þær mjög álit-
leg afkvæmi.
Eins og að líkum lætur þá voru I. verðlauna kýrnar
mjög misjafnar að gæðum, en þó stend ég í þeirri
meiningu, að aldrei hafi kröfurnar verið settar jafn-
liátt og í þetta skipti. Þegar ég fór að athuga betur
niðurstöður sýninganna, sá ég, að heppilegra mundi
vera að flokka I. verðlauna kýrnar í 4 flokka, eftir
því, livað þær hafa sýnt mikil afköst og eftir því, hve
vel þær eru hyggðar. Bezti flokkurinn verður þá I.
verðlaun af 1. gráðu, annar flokkurinn I. verðlaun af
2. gráðu, þriðji flokkurinn I. verðlaun af 3. gráðu og
fjórði flokkurinn I. verðlaun af 4. gráðu. I. verðlaun
af 1. gr. liafa þá fengið 45 kýr. Þessar kýr hafa allar
skilað miklum afurðum í mörg ár, eru allar vel hyggð-
ar, hafa 82.8 stig fyrir byggingu að meðaltali, eru
allar af þekktum ættum og hafa margar reynzt ágæt-
lega til undaneldis, en engar svo að vitað sé illa. Þess-
ar kýr eiga allar að vera sjálfsagðar nautsmæður, sé