Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 268
266
BÚNAÐARRIT
II. verðlaun, vegna þess að afkvæmi þess eru ung og
dreifð. Það var því elcki fyrr en að sýningunum lokn-
um að séð varð, að þetta naut átti engu síður I. verð-
laun en þeir Hængur frá Hjálmholti og Brandur frá
Unnarholtskoti. Þetta naut er Bíldur frá Eyjarhólum.
Dætur Bílds eru fáar og ungar, en þó virðast þær
líklcgar mjólkurkýr. En þær eiga varla sinn líka hvað
byggingu snertir, og sama er að segja um þau 5 naut,
sem sýnd voru undan Bíld á sýningunum í vor. Um
ætt Bílds er það að segja, að hann er sonur Skjaldar
frá Dyrhólum, en hann var afburða gott naut, eins og
síðar skal vikið að. Móðir Bílds er Búkolla í Eyjar-
hólum, en hún er líka dóttir Skjaldar frá Dyrhólum.
Móðurmóðir Bílds var Búkolla eldri i Eyjarhólum.
Þær hafa hvorug skilað miklum afurðum, en þær
hafa ekki heldur fengið fóður til þess að mjólka meira
en þær liafa gert.
Nú í haust seldi Nf. Dyrhólahrepps Bíld nautgripa-
ræktarsambandi Rangárvalla- og Vestur-Skaftafells-
sýslu. Þetta var að mörgu leyti skynsamleg ráðstöfun.
Mýrdælir liafa aldrei getað haldið nógu lengi í nautin,
aðallega vegna þess, að kúabúin eru fremur smá, og
þess vegna þarf mikið að leiða nautin á milli. Auk
þess var Bíldur alltof lítið notaður. Nautgriparæktar-
sambandið leigir Bíld eitt ár í senn þeim félögum,
sem eiga auðvelt með að nota gömul naut og geta
notað þau mikið. Á þennan hátt er það tryggt, að
Bíldur verður mikið notaður á næslu árum og marg-
ar kvígur aldar undan honum.
Það yrði of langt mál að kynna hér öll II. verðlauna
nautin, en í sambandi við umtal um sýningar á kúm
í einstökum félögum skal vikið nokkuð að einstaka
nauti.
Eins og tafla III ber með sér og vikið er að hér að
framan, þá er I. verðlauna kúnum skipt í 4 flokka,
þ. e. I. verðlaun af 1. gráðu, 2. gráðu o. s. frv., og er