Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 286
284
BÚNAÐARRIT
ar. Það talar skýrara máli cn nokkur orð, hve ágæt-
ur hann var. Dætur Skjaldar hafa allar góða yfirlínu
og niargar ágæta, ágætar útlögur og mikla boldýpt
svo að af ber, málir eru breiðar, beinar og jafnar og
fótstaða góð, júgrin mjög stór, en sum nokkíið síð,
spenar yfirleitt góðir og gott að mjólka kýrnar. Þær
eru miklar kýr, vel holdfylltar með þróttlegan og rækt-
arlegan baus, mjúka húð og slétt hárafar. Þær voru
fegursti systrabópurinn, sem kom á sýningarnar, og
nægir að benda á, að þessar 19 kýr undan Skildi, sem
fengu I. verðlaun, fengu 84.4 slig fyrir byggingu að
meðaltali. Til samanburðar má nefna, að í heilum
sveitum náði engin kýr svo hárri viðurkenningu. Á
hinn bóginn dylst mér eigi, að Skjöldur liefur ekki
verið neitt óvenjulegt afbrigði, heldur vel þroslcaður
ávöxtur á sterkum og vel ræktuðum meiði. Á síðustu
sýningu, sem haldin var vorið 1947, var svo komið, að
hin gamlaog traustaræktun hinsmýrdælskánautgripa-
stofns var komin á nokkurn tvístring. Skjöldur liafði
verið felldur, en í hans stað keypt naut frá Hvanneyri
með injög gallaða byggingu og veila ættartölu með
tilliti til afurða. Ekkert naut hal'ði verið alið undan
Skildi neina eitt, og var það tvævett á sýningunni og
hét Bíldur í Eyjarhólum. Þetta naut var á sýning-
unni kjörið til þess að halda áfram ræktun hins gamla
hreinræktaða stofns, en með því var valið naut, sem
Rauður liét, undan Hvanna og Gad'u 178 í Álftagróf,
einni af beztu kúnum í Mýrdal. Óreynt er, hversu vel
Rauður liefur gefizt, en Bíldur bjargaði því, að blá-
þráður kæmist á ræktun þessa merkilega kúastofns.
Núna, þegar Bíldur er seldur út úr félaginu, var val-
inn í stað hans sonur hans og Hafeyjar á Loftsölum,
einhverrar glæsilegustu kýrinnar í Mýrdal. Vonandi
reynist hann vel, því að ekki er að efa það, að undan
lionum og beztu kúnum í Mýrdal verða alin mörg naut.
Á herðum Nf. Dyrhólahrepps hvílir alvarleg skylda.