Heilbrigðismál - 01.10.1973, Page 6
Þetta var því uppgötvun á orsök krabba-
meins, sem leiddi í ljós hvað fólk í ákveðnum
starfshópi fékk það og hverjir ekki. Leit að
umhverfisþáttum, algengum í vissum hóp,
en sem komu ekki fyrir í öðrum, leysti gát-
una.
Sagan af Pott, sem uppgötvaði fyrir 200
árum, að sótarar fengu krabbamein í pung-
inn af að hreinsa skorsteina, er svo alkunn,
að óþarft er að endurtaka hana.
Einn frægasti maður nútímans, fyrir leit
sínan að umhverfisþáttum krabbameins og
uppgötvanir í sambandi við hana, er írski
skurðlæknirinn, Denis Burkitt. Hann ferð-
aðist fyrir nokkrum árum um 9 Afríkulönd,
til að rannsaka útbreiðslu sérkennilegs, il-
kynja sjúkdóms, sem heldur sig að langmestu
leyti á vissum svæðum í Afríku og herjar nær
eingöngu á börn. Uppgötvanir Burkitts á eðli
sjúkdómsins, hegðun hans og útbreiðslu voru
næsta ævintýralegar, og öfluðu honum
skyndilega heimsfrægðar. Furðulegur árang-
ur hans af læknismeðferð á sjúkdómnum,
vakti ekki síður athygli um alla heimsbyggð-
ina.
En saga þessa sjúkdóms verður ekki rakin
að þessu sinni, heldur verður skýrt frá skoð-
unum þessa hugmyndaríka læknis á því,
hvernig ristilkrabbameinið verður til og fær-
ist jafnt og þétt í aukana. En áður en hann
kemur að því, lætur hann gamminn geysa um
aðrar tegundir krabbameins og háttalag þess.
Látum hann nú sjálfan tala:
Ég ætla að ræða krabbameinstegundir, sem
eru sérkennandi fyrir vestræna menningu og
eru undir áhrifum hennar.
Krabbamein í brjósti er algengasta krabba-
meinstegund í Englandi. En ég var fyrir
nokkru á mjög menningarsnauðu svæði í
Afríku, og dvaldi þar hjá trúboðslækni, sem
hafði í 14 ár verið einasti læknir hér um bil
100.000 manna þjóðflokks. Hann hafði aldrei
4
séð eitt einasta brjóstakrabbamein. Það er af
einhverjum ástæðum miklu algengara meðal
vestrænna þjóða.
Lungnakrabbinn er vestrænn sjúkdómur,
vegna þess, að náunginn sem reykir, fær
lungnakrabbamein, en hinn, sem lætur sígar-
ettuna eiga sig, og sézt aldrei með hana milli
fingranna, fær það ekki. Þetta er eitt allra
ljósasta dæmi um krabbamein, sem umhverf-
ið skapar.
Til allrar óhamingju göngum við fast fram
í því, að kenna fólkinu í vanþróuðu löndun-
um, að tileinka sér þennan sjúkdóm. Sú
krabbameinstegund, sem mig langar mest til
að ræða við ykkur, er krabbamein í ristlinum.
Krabbamein í ristli, er sú tegund, sem drepur
flesta í Englandi, næst lungnakrabbanum. 1
Bandaríkjunum finnast 200 tilfelli af ristil-
krabbameini daglega. Tuttugu ný tilfelli dag-
lega í Kanada, en það er ákaflega sjaldgæft í
þróunarlöndunum.
Það er engin krabbameinstegund jafn
tengd efnahagslegri þróun og krabbamein í
ristli. Þessi tegund krabbameins, stendur í
nánu sambandi við nýtízku menningu vest-
rænu ríkjanna. Það er í meira lagi athyglis-
vert, að á iðnaðarsvæðum Bandaríkjanna er
ristilkrabbamein í hámarki en í lágmarki á
landbúnaðarsvæðunum. Þessi atriði verður að
taka til greina, þegar við leitumst við að
hugsa okkur orsakir ristilkrabbans og reyn-
um, vona ég, jafnframt að útrýma honum.
Sú afstaða, sem við ættum að taka í krabba-
meinsrannsóknunum er sú, að ef 2 sjúkdóm-
ar eru alltaf tengdir hvor öðrum, eigi þeir
sennilega sameiginlegan uppruna. Sé líldegt
að orsök þeirra sé sameiginleg, og annar er
sjaldgæfur en hinn algengur, skulum við
gleyma sjaldgæfa sjúkdómnum í bili, en leita
orsaka algenga sjúkdómsins. Við finnum þá
um leið orsök hins sjaldgæfa.
Nokkru seinna heldur Burkitt áfram: Þið
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMAL