Heilbrigðismál - 01.10.1973, Page 10
D. V. Beaven, læknir:
Sykursýki
Sykursýki stafar af skorti á eðlilegri myndun
insúlíns. Eiginlega er sykursýki lélegt heiti
á sjúkdómnum, vegna þess, að hann truflar
eggjahvítu og fituefnaskipti líkamans jöfnum
höndum og kolvetnanna. Insulín er hormon
eða vaki og kemiskur stjórnandi athafna
frumanna í líkamanum. Orðið hormón, er
komið úr latínu og þýðir sendiboði. Insulín-
hormónarnir líkjast eggjahvítuefnum og
myndast á einum ákveðnum stað í líkaman-
um, en áhrif þeirra ná til allra svæða hans.
Insulín myndast í svokölluðum beta-frumum
í Langerhans-eyjum briskirtilsins.
Þegar heilbrigt fólk borðar og fæðan melt-
ist og síast úr maganum og þörmunum, losa
aðrir hormónar í innþekjum maga og þarma
insúlínið út í blóðstrauminn úr birgða-
geymslu briskirtilsins.
Myndun insúlíns vex í samræmi við eggja-
hvítu og sykur blóðsins, sem byggist á síun
næringarefnanna frá meltingarfærunum.
Insúlínið er vitanlega nauðsynlegt til að
flytja sykur og eggjahvítu til allra fruma lík-
amans. Þúsundir milljóna, í hverju einasta
lffæri ,eiga allt sitt undir insúlninu komið,
að það færi þeim Ifsnauðsynleg næringar-
efni.
Sé insúlnmyndunin eða útrás þess trufluð,
bregst um leið flutningur eggjahvítu og syk-
urs til frumanna og þannig truflast eðlileg
starfsemi þeirra. Auk þess vex blóðsykurs-
magnið smátt og smátt, þar til sykurinn fer
að skiljast út með þvaginu, gegnum nýrun.
Of mikill sykur síast þar út og líkaminn getur
ekki hagnýtt sér hann. Sykurmagnið í þvag-
inu fer því vaxandi. Stundum getur sykur-
magnið orðið svo mikið, að ógrynni af vatni
þurfi til að halda sykrinum í upplausn og
hindra að sykurleðja þvagsins fellist út sem
kristallaðar, en þeir myndu skadda nýrun og
blöðruna.
Þegar svona stendur á, verða þvaglátin
æði mikil og þessu fylgir stöðugur þorsti og
vökvadrykkja. Bráð sykursýki af þessu tagi
á sér aðallega stað meðal barna og ungs
fólks.
kemst þannig að orði vegna þess, að hann
missti annað augað sem drengur. Það varð
til þess, að enska herlæknaráðið synjaði hon-
um um stöður í samveldislöndunum, sem
hann sótti um hvað eftir annað. Þó fór svo að
lokum, að hann fékk stöðu við spítala í Kam-
pala í Afríku og vann þar frábær afrek í
sinni sérgrein.
Hvort sem kenningar þessa óvenju hug-
kvæmna læknis eiga eftir að fagna sigri, eru
þær sannarlega þess virði að þær séu krufðar
til mergjar og hugsað um þær.
Það eru mennirnir með hugkvæmnina,
hugarflugið og eldmóðinn sem við eigum að
hlusta á fordómalaust, því af þeim er helzt
að vænta lausnar á þeim gátum, sem barist
er við að leysa og mestu máli skiptir að séu
leystar.
8
fréttabréf um heilbrigðismál