Heilbrigðismál - 01.10.1973, Síða 11
Fundur í Félagi sykursjúkra. Helgi Hannesson, form. í rœdustól.
Þetta er miklum mun sjaldgæfara meðal
eldra fólks, þar sem aðdragandi insúlínskorts-
ins er venjulega miklu lengri og hæggengari.
Það er meira að segja talið, að 10 ár geti lið-
ið frá því að insúlínskortur hefst og þar til
sjúkdómurinn er kominn á það stig, að
sjúklingurinn finni til þess að hann þurfi
að leita læknis.
Sykursýki hefst sem sagt nokkuð skyndi-
lega í ungu fólki, og þannig geta frumur þess
ekki starfað með eðlilegum hætti, og það fær
væg einkenni vanheilsu og verður næmt fyr-
ir smiti. Seinna kemur þorsti og ör þvaglát.
Eldra fólkinu hrakar miklu hægar, sem verð-
ur til þess, að sjúkdómurinn uppgötvast oft
ekki fyrr en seint og síðar meir, en þá veldur
eggjahvítan, sykurinn og ekki sízt fitan, stöð-
ugum en hægfara skemmdum á slagæðum
líkamans. Heilaslag og hjartaáföll geta síðan
orsakast af þessu ástandi.
Tíðni sykursýki
Sykursýki má heita sjaldgæf hjá fólki inn-
an 21 árs aldurs. Eftir það fer hún stöðugt
vaxandi meðal allra þjóða heims.
Sykursýki er algengust hjá holdugu fólki,
þó fær holdgrannt fólk, eins og Indverjar og
Kínverjar hana. Hún virðist vera allsherjar-
sjúkdómur mannkynsins.
í Nýja-Sjálandi hafa vísindamenn fengið
staðfest, að 8 af hverjum 100 Maórum, sem
koma á -hristchurchspítalann séu með sykur-
sýki, en 4 af hverjum 100 Evrópumönnum.
Hvað veldur þessum mikla mismun, vita
menn ekki.
Meðferð
Það hefur mikla þýðingu að sjúkdómurinn
komi snemma til meðferðar. Ekki fer á milli
mála, að þegar sjúkdómurinn finnst snemma,
og blóðsykrinum er haldið eins eðlilegum og
frekast er unnt, verður sjúklingunum lengra
lífs auðið en ella og geta verið, að því er
virðist, við góða heilsu. Aðallega er um
þrenns konar meðferð að ræða.
1. Isúlín: Það er eggjahvítuhormón og
kemur ekki að notum, sé hann tekinn inn;
þess vegna verður að bæta skortinn með
sprautum. Þær eru gefnar 1-—2 sinnum á
dag; sjaldan 3 sinnum. Nú munu vera 20
tegundir insúlíns að velja á milli, og það get-
ur tekið margar vikur, með tilraunum og
mistökum, að finna hina heppilegustu. Að-
Framh. á bls. 10.
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
9