Heilbrigðismál - 01.10.1973, Side 13
Stundum, sérstaklega í sambandi við Mé-
niers-sjúkdóm (truflun í innra eyranu, sem
kemur í köstum, með heyrnardeyfu, augn-
riðu, svima og uppköstum) kemur suðan
fram sem lágvært murr.
Stundum er suðan stöðug en getur líka
komið við og við. Hátóna fyrirbrigðið með
miklum heyrnarmissi er merki staðbundinn-
ar ertingar, fyrsta stig hrörnunarsjúkdóms,
sem þegar er búinn að eyðileggja eitthvað af
taugafrumum.
Venjulega er eyrnasuða einkenni annarra
truflana í líkamanum, eitt af mörgum við-
vörunarmerkjum hans. Erting, annað hvort í
heyrnartauginni, sem flytur líkamanum hljóð
utan frá og áfram til heilans eða aðliggjandi
taug, getur verið orsök þessarar plágu. Suða
fyrir eyrum getur líka orsakast af þrýstingi á
heyrnartaugina og aðrar nágrannataugar,
sem liggja frá hljóðhimnunni í heyrnarmið-
stöðina í heilanum.
í líkingu við önnur hljóð í höfðinu, bendir
suða fyrir eyrum á truflun í innra eyranu,
enda eru hljóðin huglæg einkenni: svar
heyrnartaugarinnar annað hvort við ertingu
eða örvun, sem getur átt upptök sín annað-
hvort í miðeyranu eða ytra eyranu.
Þessum hljóðum má ekki blanda saman
við ofheyrnir eða raddir sem sálsjúkt fólk
heyrir stundum. Hár blóðþrýstingur, gigt-
sjúkdómar og ýmsir eyrnasjúkdómar geta leg-
ið til grundvallar höfuðhljómnum, og þegar
orsakirnar hafa verið leiddar í Ijós og lækn-
aðar, hverfa hljóðin. Þegar heyrnin starfar
fara hljóðbylgjur gegnum hlustina og skella
á hljóðhimnunni. Við það myndast titringur
í smá beinum í miðeyranu. Mannseyrað er
samsett úr mörgum pörtum: hinu sýnilega
ytra eyra, miðeyranu og innra eyranu. Ytra
eyrað er lúðurmyndað líffæri, með trekt eða
gangi inn að hljóðhimnunni. Þetta er þunn
strengd himna, sem titrar þegar hljóðbylgj-
FRÉTTABRÉF UM HEII.BRIGÐISMÁL
urnar skella á henni. Innan við hljóðhimn-
una liggja 3 smá bein, sem líkjast hamri,
steðja og ístaði. Þegar hljóðbylgjurnar setja
hljóðhimnuna á hreyfingu, leiðist titringur-
inn í þessi bein og þaðan áfram í vökva innra
eyrans, þar sem sjálf heyrnin á upptök sín.
í innra eyranu eru nokkur hár, sem bylgj-
ast fram og aftur. Þessi hár, sem eru svo fín-
gerð, að þau sjást ekki nema í smásjá, flytja
hljóðið til heyrnartaugarinnar, er flytur það
svo áfram til heilans.
Ástæðan til þess, að við getum greint hljóð
hvert frá öðru er, að í innra eyranu liggur ör-
lítil himna, nokkuð sem svarar til hörpu,
með ótal strengjum. Ungt fólk getur heyrt
hljóðhraða upp í 23.000 bylgjur á sekúndu,
þar sem e'dra fólk heyrir aðeins 8.000.
Hversu sterk eru nú ýmis hljóð sem við
heyrum? Hvísl í eins meters fjarlægð, er
hundrað sinnum sterkara en hjartahljóð. Eyr-
að þolir hljóð, sem eru milljón sinnum sterk-
ari en þrumur.
í flyglinum eru 8 áttundir og 96 mismun-
andi tónar. Eyrað getur greint 11 áttundir og
1500 mismunandi tóna.
Sé suða fyrir eyrum ekki tekin til ræki-
legrar rannsóknar og meðferðar geta orsakir
hennar leitt til alvarlegs heyrnarmissis. Með-
al þess, sem veldur suðu fyrir eyrum má
nefna hvers konar skemmdir á miðeyranu,
smitsjúkdóma af völdum kvefs, sem ekki hef-
ur verið tekið nægilega til greina, skarlats-
sótt, barnaveiki, mislinga, bólgur í kjálkahol-
um og fleiri sjúkdóma.
Kvef, sem ekki er tekið nógu tímanlega
til meðíerðar getur breiðzt út t kokhlustirnar
og valdið bólgum í miðeyranu, sem geta fyllt
það greftri. Ef kokhlustirnar bólgna, lokast
þær, og gröfturinn sem hefur safnazt innan
við, þrýstir á hljóðhimnuna. Kokhlustin ligg-
ur frá miðeyranu og niður í kokið. Hún
temprar loftþrýstinginn í miðeyranu. Suða
11