Heilbrigðismál - 01.10.1973, Side 15
Veirur, hin langvinna
dauðaorsök
Allir, sem hafa fengið skjálftaflog og heift-
arlega beinverki inflúenzunnar, eða muna
eftir rauðu klæjandi flekkjunum, hitanum og
höfuðverkjunum, þegar þeir fengu mislinga
í æsku, vita, að venjulega kemur veirusmitið
sem skyndiárás á líkamann, bráð og ofsa-
fengin. En veirur geta einnig leynzt í dái
innan fruma líkamans, lifnað við jafnvel
mánuðum og árum eftir upphaflega smitið,
og valdið langvinnum sjúkdómum, sem jafn-
vel geta leitt til dauða. Nú eru vísindamenn
að raka saman sönnunum þess, að sumir al-
varlegustu taugasjúkdómarnir, þar á meðal
lamariða (Parkinsonismus) og heilamænu-
sigg (Sclerosis multiplex), kunni að stafa af
lævísum aðgerðum þessara hægfara veiruteg-
unda.
Ein af fyrstu vísbendingum þess, að veirur
ættu hlutdeild í ýmsum taugasjúkdómum,
eiga fyrstu stoð sína í rannsóknum á kuru,
undarlegum sjúkdómi, sem stingur sér niður
meðal Fore-ættflokkanna í austurhálendi
Nýju-Guineu. Sjúkdómurinn hefst með því,
að samhæfing vöðvanna fer hrakandi. Því
fylgir skjálfti í handleggjum og fótum og
höfuðtin. Sumir sem eru slegnir þessum sjúk-
dómi, komast í andlegt jafnvægisleysi og því
fylgja æðisgengin hláturköst. Kurussjúkdóm-
urinn er alltaf banvænn.
Að áliti D. Garleton læknis og samstarfs-
manna hans, sem rannsökuðu sjúkdóminn á
6. tug aldarinnar, er hann greinilega arfgeng-
ur. Þeir tóku fram, að sjúkdómurinn kæmi
aðeins fyrir í einum litlum ættstofni, seinna
komust þeir að raun um, að þeir gátu komið
af stað sláandi líkum sjúkdómi hjá simpöns-
um, með því að sprauta þá með taugavefja-
súpu úr kurussjúklingum.
Þaðan drógu þeir þá ályktun, að sjúkdóm-
urinn stafaði af veirum. Helzt álitu þeir, að
hann breiddist út við ógeðslega trúarathöfn
Fore-ættstofnsins, sem felst í þess konar
mannáti, að fólkið tyggir og tætir sundur
kjötið af ættingjum sínum og síðan makar
það því um allan líkama sinn. Þetta á að
tákna sorgarathöfn.
Skyndilega tók að draga úr tíðni sjúkdóms-
ins, eftir að Fore-ættkvíslirnar lögðu niður
mannát.
Alveg nýlega sýndu vísindamenn fram á,
úr eyrunum. Flísar úr þeim geta stungist inn í
hlustina og valdið ígerðum.
Hafi eyrnarmergur myndað kökk, harðnað
tipp og þornað, verður að fara til eyrnarlækn-
is til að láta fjarlægja hann.
FRÉTTABRÉF UM HEI LBRIGÐISMÁL
Hávaði er skaðlegur eyrunum. Gætið þess
að eyrun fái að njóta nauðsynlegrar hvíldar.
Verði heyrnartaugin fyrir stanzlausri ertingu
af hávaða, getur það orsakað heyrnarleysi og
suðu fyrir eyrum. Bj. Bj. þýddi.
13