Heilbrigðismál - 01.10.1973, Page 17
Skólanemendur standa
fyrir skýrslugerð
um reykingar
Greinin sem fer hér á eftir, skýrir frá rann-
sóknum skólanema á skyldunámsstigi á reyk-
ingavenjum og tíðni reykinga við Melville-
skólann í Hamilton á Nýja-Sjálandi. Þarna
er um gott fordœmi að rceða og athyglisvert
framtak, sem íslenzku skólarnir œttu að taka
sér til fyrirmyndar. Það vœri mjög æskilegt
að nemendur í harna- og unglingaskólunum
framkvœmdu sams konar rannsóknir. Þannig
mœtti safna miklum fróðleik um reykinga-
venjur harna og unglinga.
Ekki er að vita nema aðgerðir sem þessar
gætu komið af stað hreyfingu, sem yrði til
þess, að nemendur skólanna og kennarar fceru
að hugsa í fullri alvöru um þessi mál, sem
gceti ef til vill orðið til róttcekra aðgerða inn-
an skólanna.
Það, sem þarf að gerast og verður að vinna
að, er að þar skapist svo sterkt almenningsálit
gegn reykingum, að skólafólkið fordcemi þcer
með öllu. Þá vceri ekki til einskis af stað far-
Hópur framtakssamra skólanema gerði
skýrslur um reykingar í barna- og unglinga-
skólunum í Melville á Nýja-Sjálandi.
Spurningar, sem nemendur skólans áttu að
svara voru eftirfarandi:
— Hefurðu nokkurntíma reykt sígarettu?
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
- Hvað varstu gömul (gamall) þegar þú
reyktir hana?
- Vita foreldrar þínir um það?
- Hvaðan fékkstu hana (frá foreldri, bróð-
ur, systur, vini).
- Tókstu hana eða keyptir?
- Hvers vegna reyktirðu fyrst? Var það
sök forsldra, bræðra, systra, vina, aug-
lýsinga eða eigin hvata.
- Ætlarðu að reykja þegar þú ert full-
orðinn?
- Nauztu fyrstu sígarettunnar?
- Reykirðu reglulega?
- Hve margar sígarettur á mánuði?
- Heldurðu að reykingar séu þér til góðs?
- Heldurðu að reykingar geti valdið sjúk-
dómum?
- Heldurðu að reykingar geti valdið
krabbameini í lungum?
- Heldurðu að þú fáir lungnakrabba ef þú
reykir?
- Heldurðu að fólk reyki til að sýnast full-
orðið?
- Heldurðu að fólk reyki til að vera eins
og vinir þess?
- Heldurðu að auglýsingar valdi því að
fólk fer að reykja?
- Heldurðu að fólk eigi að reykja ef það
langar til þess?
Framh. á bls. 21.
15