Heilbrigðismál - 01.10.1973, Qupperneq 19
Tvö bréf til lesenda
Fréttabréfsins
Bréf Sæmundar Jóhannessonar var að vísu
skrifað fyrir heilu ári og maðurinn sem þar
um ræðir löngu búinn að sigrast á reykingun-
um af sjálfsdáðum.
Eg þakka Sæmundi bréfið og áhuga hans
fyrir að vilja bæta böl þeirra, sem eru á valdi
reykinganna.
Þegar ég rakst nýlega á bréfið, datt mér í
hug hvort ekki væri rétt, að birta það í
Fréttabréfinu, svo að þeir, sem þess kynnu
að óska gætu leitað til Sæmundar og notið
þeirra ráðlegginga, sem hann hefur á boðstól-
um og býður fram af góðum vilja og heilum
hug.
Þar sem vandinn, sem fylgir sígarettureyk-
ingum er orðinn svo mikill og yfirþyrmandi,
má einskis láta ófreistað til að draga úr hon-
um, með hverjum þeim ráðum, sem tiltæk
eru. Ekki er hægt annað en fagna hverju því,
sem kann að duga til að leysa fólk úr reyk-
ingagildrunni.
Yið vitum að heilsa þeirra, sem reykja
nokkuð verulega er alltaf í yfirvofandi hættu
þegar fram í sækir. Henni er jafnt og þétt
stefnt í voða með reykingunum, þrátt fyrri
það, að öllum ætti að vera Ijóst, að hún er
það dýrmætasta, sem hver og einn á.
Hverjum þeim, sem hættir reykingum ber
heiður fyrir þá staðfestu og það viljaþrek,
sem verður að beita til að vinna bug á svo
kröfuhörðum og illvígum ávana. Takist það,
er sigur hans því mikill og sæmd hans hefur
vaxið eftirminnilega.
Bjarni Bjarnason.
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMAL
Vinaminni, Akureyri, 19. okt. 1972.
Ég var að fá í hendur og líta í „Fréttabréf
um heilbrigðismál''. Kemur það mér til að
rita yður þetta bréf. En áður en ég byrja á
sjálfu efninu, langar mig til að þakka yður
persónulega fyrir söng yðar mér og öðrum til
ánægju, sem sjúklingar vorum í Vífilsstaða-
hæli um áramótin 1923 og 1924.
Rúmlega ári eftir að ég fór úr hælinu fór
ég að vinna hjá Arthur Gook, trúboða á
Akureyri, og gerðist fastur starfsmaður hans
vorið 1930. Hann hafði numið eitthvað í svo
nefndum hómópatalækningum, áður en
hann kom til íslands, og stundaði þær hér.
Leitaði fólk til hans hvaðanæva af landinu.
Fengu margir meinabót eða fulla lækningu,
reykingamenn ekki síður en aðrir. Hann not-
aði ákveðin lyf við reykingum. Hið fyrsta
þeirra var Argentum nitricum, útþynnt í
vatni og í vissum hlutföllum við það. Með
þessu átti fólk að skola munninn innan eftir
mat og kaffi, þegar það var vant að grípa
vindlinginn. Á eftir komu svo inntökur, lyf,
sem bættu úr óþægindunum, sem fylgja því
að hætta, hið fyrra til að draga úr slappleika
og óþægindum, sem meltingin gat liðið, en
hið síðraa úr óróleikanum, taugaspennunni,
sem siglir í kjölfarið. Bæði þessi lyf skapa
andúð á tóbaki.
Þegar Arthur Gook varð að fara alfarinn
af íslandi - reyndar fyrr, þegar hann fór í
ferðalagið umhverfis jörðina - hélt fólk á-
fram að koma og spyrja um lyf, bæði við
17