Heilbrigðismál - 01.10.1973, Blaðsíða 20
Sœmundur G. Jóharmesson.
reykingum og öðru. Fannst mér þá ég verða
í Drottins nafni að leggja út á þá braut að
láta úti lyf, enda hafði ég nálega ómótstæði-
lega löngun til þess, hafði þegar ég var barn
ákaflega gaman af að lesa Lækningabók Jón-
assens. - Læknar hér hafa ekkert skipt sér af
þessu, jafnvel komið fyrir, að vísað hefur
verið til mín. - Margir hafa líka fengið lyf
við reykingum, og ég veit, að margir hafa
hætt, þótt sumir byrji aftur af rælni. En ég
hef lært að vara fólk við því.
Ef þér hafið nafn og heimilisfang manns-
ins, sem þér segið frá á bls. 21-22, þá skal
ég með ánægju senda honum lyf gegn tó-
baksnautn. Hann þarf ekki að greiða þau
fyrirfram og ekki heldur, ef þau gera honum
ekki gagn. En geri þau sitt verk, svo að hann
geti alveg hætt, má hann greiða þau. Fyrir
mitt leyti efast ég ekki um gagnið af þeim.
Ef þér viljið hafa samband við hr. Steindór
Steindórsson, fyrrv. skólameistara Mennta-
skólans á Akureyri, þá býst ég við, að hann
muni fús til að segja yður, hvaða áhrif annað
þessara „andúðar"-lyfja hafði á hann í fyrra-
haust. Það var sent til að styrkja hann eftir
mikinn blóðmissi, en hafði þau áhrif um
leið, að honum hvarf nálega öll löngun í
tóbak, svo að hann gat ekki reykt pípuna
18
sína nema 3-4 reyki. Þá var löngunin horf-
in. Hann hefur sagt öðrum en mér frá þessu,
fólki, sem svo hefur komið og beðið um
„sömu pillur og hann Steindór fékk."
Virðingarfyllst,
Sœmundur G. Jóhannesson.
1 bréfi því, sem fer hér á eftir kemur Theó-
dór Gunnlaugsson inn á athyglisverða hug-
mynd um hvernig ætti að haga fræðslu um
skaðsemi reykinga og önnur heilbrigðismál í
skólunum. Þess vegna fékk ég leyfi hans til
að birta bréfið. Þó það sé kannski óviðeig-
andi að birta hól um sjálfan sig, eins og þetta
bréf er að miklu leyti, læt ég það samt fjúka,
og til þess að kóróna verkið birti ég einnig
atriði úr svarbréfi mínu til hans:
Eg þakka yður bréfið góða, sem þér skrif-
uðuð mér 16. apríl. Það var bæði hressandi
og uppörvandi að fá svo góð og viðurkenn-
andi ummæli frá manni sem veit hvað hann
er að fara og er jafn brennandi í andanum og
þér.
Ég náði mér í febrúarheftið að Heima er
bezt og las greinina yðar þar af athygli og
mér til ánægju ... Einmitt svona á að taka á
þessum málum, á skemmtilegan og liálf
gamansaman hátt, án þess að særa neinn. Ef
nógu margir leggðust á þessa sveif, til að
breyta almenningsálitinu, væri hægt að hnika
ýmsu til bóta og bjarga miklu, en því miður
eigum við allt of fáa liðsmenn í baráttunni
gegn reykingum ...
Bjarni Bjarnason.
Austra-Landi í Öxarfirði, 16. 4. 1973.
Kæri Bjarni Bjarnason.
Þessar fáu línur eiga að flytja yður mínar
innilegustu þakkir fyrir ómetanlegt starf í
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL