Heilbrigðismál - 01.10.1973, Qupperneq 23
SKÓLANEMENDUR STANDA FYRIR
SKÝRSLUGERÐ UM REYKINGAR
Framh. af bls. 15.
- Heldurðu að eigi að banna tóbaksaug-
lýsingar?
Einn hinna ungu forstöðumanna skýrir frá
hvað rannsóknin leiddi í ljós.
- Fjórði hluti nemendanna hafði aldrei
reykt.
Nokkur börn höfðu fiktað við reykingar
um 5 ára aldur, en flestir drengirnir, sem eitt-
hvað höfðu átt við reykingar, kveiktu í fyrstu
sígarettunni 7-8 ára gamlir.
- Meiri hluti stúlknanna hafði ekki látið
freistast eins snemma og drengirnir; þær
gerðu fyrstu tilraunina í krigum 10 ára ald-
ur.
- Skýrslurnar sýndu, að langflestir, bæði
drengir og stúlkur, höfðu fengið fyrstu sígar-
ettuna hjá vini. Þetta er ein ástæðan til þess,
að foreldrar segja: Vertu gætinn í vinavali.
- Það er talið að auglýsingar örvi mörg
börn til að hefja reykingar og halda þeim á-
fram.
- Bæði drengir og telpur töldu flest, að
reykingar gætu valdið lungnakrabba. Miklu
fleiri telpur álitu það en drengir. Samt sem
áður svöruðu mörg: Ég veit það ekki.
— Þetta sýnír að það ætti að fræða skóla-
börnin miklu meira um reykingahætturnar.
— Sextíu % þeirra telpna, sem höfðu
reykt, sögðu að þær myndu ekki gera það
fullorðnar. Fimmtíu og tvö % drengjanna
kváðust ekki ætla sér það. Tíu % telpnanna
héldu að þær myndu reykja framvegis, en
22% drengjanna voru sömu skoðunar. Hin
voru ekki viss.
Blaðið, sem flutti greinina segir í lokin:
Niðurstöður okkar eru þær, að reykingar séu
mikið vandamál í skólum, og að miklu meira
þurfi að gera til að fræða börnin hvaða
hættur þær hafi í för með sér fyrir heilsuna.
Bj. Bj. þýddi.
sem lofar góðu, verður að einbeita sér misk-
unnarlaust að rannsókn þess og fylgja því
eftir, segir prófessor Peter Alexander, einn
af mestu krabbameinssérfræðingum nútím-
ans.
H. B. Turbott, læknir:
Sennilega vinnst baráttan gegn sígarettu-
reykingum aldrei, nema fundin verði upp
meinlaus sígaretta eða að allir foreldrar gefi
börnum sínum gott fordæmi, með því að
reykja ekki. Ef faðir, móðir eða skólakennarar
reykja, hvernig eiga þá börnin að fást til að
viðurkenna að þau megi það ekki? Það er
margreynt, að reykingar meðal barna eru
miklu algengari þar sem foreldrar og eldri
systkini reykja.
Vitanlega á sér stað að börn taki upp á að
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
reykja þó aðrir í fjölskyldunni geri það ekki,
og þá venjulega til að sýna sjálfstæði sitt, og
til að vera ekki minni en árgangarnir, sem
þau umgangast.
Það er sennilega vonlaust með öllu, að
ætla að gera börn áhyggjufull út af reyk-
skemmdum, sem fyrst segja til sín eftir 20-
40 ár. Eina vonin er að fá börnin til að reykja
ekki, vegna þess, að það hafi illar og alvar-
legar afleiðingar fyrir loftskipti og rúmtak
lungnanna, sem spilli því, að þau geti náð
árangri eða skarað fram úr í íþróttum.
Herbragð til að hœtta reykingum.
Ungur læknir gaf sjúklingi, sem langaði til
að hætta reykingum, þessa vísbendingu: Berið
á yður svolítið af engiferrót (djöflarót). Hve-
nær sem löngunin til að kveikja í sígarettu
21