Heilbrigðismál - 01.10.1973, Page 24
C- vítamín
og æðakölkun
Tilraunir sýna að C-vítamín á mikinn
þátt í heilbrigði stoðhimna æðaþelsins (in-
tima). C-vítamín-skortur veldur breytingum á
himnunni. Hjá naggrísum orsakar hann æða
skemmdir, sambærilegar þeim, sem finnast
við æðakölkun í mönnum. Þessar sömu til-
raunir hafa sýnt, að C-vítamíngjöf dregur úr
skemmdum af völdum æðakölkunar. Þetta
gefur til kynna, að efnaskipti C-vítamínsins
í líkamanum hafi tvímælalaust áhrif á þró-
unarferil æðakölkunarinnar.
Samkvæmt ritstjórnargrein í American
Journal of Nutrition (amerískt tímarit um
næringarfræði) (23, 27 — 1970), eru þeir
þættir, er helzt gefa í skyn þátt C-vítamíns-
skorts sem orsök æðakölkunar, eftirfarandi:
1. Eitt af fyrstu og fremstu ætlunarverkum
C-vítamínsins er að auðvelda myndun fib-
roblastanna, sem límgjafi bandvefsþráð-
anna myndast úr.
2. Sjúkdómsþróun stífludreps í hjarta (in-
farctus cordis), sem á sér stað milli þess
sem blóðið síast úr æðinni og til myndun-
ar límgjafans í æðakölkunar- og band-
vefsblettunum, hefur enn ekki fengizt
lætur á sér kræla, eigið þér að stinga örlitlu
af engiferrót upp í yður. Ertingin af engifern-
um fullnægir lönguninni að vissu marki, og
þó aðeins smá ögn af engifer sé í munnin-
um, er bragðið svo sterkt, að reykingar
verða hreint ekki þægilegar og við það
minnkar freistingin.
nægilega skýrð, þó þeim kenningum vaxi
fylgi, að skemmdirnar verði minni og grói
fyrr, sé líkamanum vel séð fyrir C-vítamín-
um.
3. Æðakölkun hefur verið framkölluð í til-
raunadýrum, með því að svipta þau alger-
lega C-vítamínum og hún hefur myndast
þó kólesterólgildin hafi ekki verið óhæfi-
lega há og að ekki hafi verið um fituút-
fellingar að ræða í frymisnets- og þelskerf-
inu (reticuloendothelial-system).
4. Næringarfræðirannsóknir hafa leitt í ljós,
að C-vítamínskortur er útbreiddari meðal
aldraðs fólks en þess, sem yngra er, enda
sækir æðakölkun miklu meira á með aldr-
inum.
5. Hjá sjúklingum með skyrbjúg hefur verið
sýnt fram á óeðlileg hjartalínurit, þó breyt-
inganna hafi ekki orðið vart klíniskt og
engin merki hjartasjúkdóms komið fram
í líðan sjúklingsins. Mikla athygli hefur
vakið að línuritstruflanir hurfu viku eftir
að C-vítamíngjöf hófst.
Bj. Bj. þýddi.
Sjúklingurinn fylgdi ráðleggingunni fullur
vantrúar. Þetta skeði fyrir 7 árum. Hann hef-
ur ekki reykt síðan.
Þarna sjáið þið! Reynið engiferrót; þið
kunnið að hafa heppnina með ykkur.
Bj. Bj. þýddi.
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
22