Heilbrigðismál - 01.10.1976, Síða 4

Heilbrigðismál - 01.10.1976, Síða 4
Bjarni Bjarnason F. 29. okt. 1901 D. 23. des. 1975 Formaður Krabbameinsfélags Reykjavíkur 1960— 1966 Formaður Krabbameinsfélags fslands 1966 — 1973 Bjarni Bjarnason læknir var í forustu- sveit krabbameinssamtakanna hér á landi frá upphafi og óumdeildur leiðtogi þeirra um áraraðir. Við sem vorum nánir samverkamenn hans á þeim vettvangi vissum hve málefni krabbameinsfélaganna voru honum hjart- fólgin og urðum vitni að fágætum áhuga hans, heilindum og dugnaði. Nú þegar hann er allur, minnumst við hans sem hins virta yfirmanns, hins mikla og heilsteypta persónuleika sem hafinn var yfir alla smámuni. Við minnumst hans sem hins glaða og hjálpsama samstarfsmanns sem miðlaði óspart af þekkingu sinni og snilli. Við minnumst hans sem hins góða vinar, hins lítilláta og Ijúfa öðlings sem vildi öllum vel gera og var öllum trúr. En efst í huga er þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast Bjarna lækni og starfa með svo góðum og göfugum manni. Starfsfólk Krabhameinsfélaganna. 4 fwttobwf tim beilbwgðismól

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.