Heilbrigðismál - 01.10.1976, Qupperneq 12

Heilbrigðismál - 01.10.1976, Qupperneq 12
Frá hálíftafundi scm haldinn var í tengslum við aðalfund Krahbamcinsfélags fslands í maimánuði. í ræðustól cr Ól- afur Bjarnason formaður Krabbamcinsfélags íslands. LJósm.: Jens Aiexandersson. Stærsti tekjuliðurinn hefur þó um allmörg ár komið frá opinberum aðilum með samþykki Al- þingis og ríkisstjórnar. Er viðbúið að félags- stjórnin verði að leita enn frekar á þau ipið á næstunni ef hin víðtæka starfsemi sem nú er í gangi á ekki að dragast saman. Dýrtíðarflóðið hefur að sjálfsögðu komið nálægt garði hjá Krabbameinsfélagi íslands eins og víðar hér- lendis undanfarin ár. Treystum við því að heil- brigðis- og fjárhagsyfirvöld bregðist vel við málaleitunum okkar nú sem endranær. Árangur og framtíðaráætlanir. Að lokum langar mig til að gera tilraun til að meta að nokkru þann árangur sem orðið hefur af starfsemi félagsins. Ég gat þess í upphafi að fræðslustarfsemi Krabbameinsfélags íslands hefði haft mikil áhrif í þá átt að breyta afstöðu lækna og almennings til þeirra vandamála sem hér er um að ræða. Það algjöra vonleysi sem ríkti þegar minnst var á krabbamein hefur að réttu lagi breyst verulega. Hér verður þó að hafa í huga að mjög er misjafnt hve viðráðanlegar hinar ýmsu gerðir illkynjaðra æxla eru enn þann dag í dag og í vissum tilfellum er þetta undir staðsetningu meinanna komið. Þar sem auðvelt er að ná til meinanna til að greina þau á byrj- unarstigi er mikils árangurs að vænta og með bættri tækni hefir verið unnt á undanförnum árum að ná til fleiri og fleiri staða í líkamanum þar sem meinin eru greind í byrjunarstigum. Til þess að slík leit að krabbameini og greining þess á byrjunarstigi beri góðan árangur verður að koma til skilningur almennings. Þess vegna er einnig fræðslustarfsemin svo mikilvæg. Almenningur hérlendis hefur yfirleitt verið mjög skilningsríkur gagnvart starfsemi sem þessari eins og reynslan varðandi holdsveiki, sullaveiki og berklaveiki hefur sýnt, en tveim fyrri plágun- um hefur sem kunnugt er verið útrýmt með öllu úr landinu og svo til fullkominn sigur unnist á berklaveikinni enda þótt vakandi auga verði að hafa með þeim sjúkdómi um ófyrirsjáanlegan tíma. Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins hafa unnið ómetanlegt gagn um land allt svo sem greinilega kom fram í skýrslu yfirlæknis Leitar- stöðvar B hér í Reykjavík á aðalfundinum í ár. Á sínum tíma lagði félagið fram drjúgan skerf að kaupum mikilvægra lækningatækja sem enn eru notuð í Landspítalanum, þar sem er kobalt- lækningatækið. Að verulegu leyti fyrir atbeina Krabbameins- félags íslands voru frumurannsóknir til grein- ingar á krabbameini hafnar hér á landi en þær eru eins og fram hefur komið undirstaða undir greiningu ýmissa tegunda krabbameins á byrj- unarstigi. 12 lúUabMt -unv heilbógdismói

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.