Heilbrigðismál - 01.10.1976, Qupperneq 29

Heilbrigðismál - 01.10.1976, Qupperneq 29
Þórarinn E. Sveinsson: F ramtí ðarhorfur í medferð fastra æxlna Þórarinn E. Sveinsson er aðstoðarlœknir við lyfja- og geislalœkningadeild krabbameinssjúklinga á Köbenhavns Amts Sygehus í Herlev í Danmörku. A ráðstefnu sem haldin var í tengslum við aðalfund Krabbameinsfélagsins í maí flutti Þórarinn framsöguerindi, en grein þá sem hér birtist skrifaði hann fyrir Fréttabréfið. Síðustu 2 áratugi hefur ríkt viss stöðnun hvað varðar árangur af meðferð sjúklinga með föst æxli. Einkum á þetta við hvað snertir meðferð algengustu tegunda krabbameins, svo sem leg- háls, brjósta og ristilkrabbameins, sem þrátt fyrir skurðaðgerð með brottnámi æxlis og eða stað- bundinni geislameðferð aðeins eru læknanleg í 35—50% tilfellanna. Hver er orsök þess að batahorfur hafa ekki batnað að mun á síðari árum þrátt fyrir veru- legar framfarir í geislunartækni og skurðmeð- ferð? I. Mikro-meinvörp. Allt bendir til þess að við frumgreiningu sjúkdómsins hafi stór hluti sjúklinga svonefnd mikro-meinvörp. Er þá um að ræða frumur frá hinu upprunalega æxli er náð hafa að dreifa sér til annarra líffæra og myndað þar nýja hnúta (meinvörp) sem eru svo litlir fyrirferðar að tiltækar rannsóknaraðferðir megna ekki að afhjúpa þá. Með bættum rannsóknaraðferðum t.d. með ísótópum (þ.e.a.s. efnum, sem senda frá sér geislun), er hafa tilhneigingu til þess að safnast fyrir í vissum líffærum, má bæta að mun nákvæmni rannsókna varðandi útbreiðslu sjúk- dómsins. Að sú er raunin hefur meðal annars sýnt sig við notkun ísótópsins Technetium til rannsóknar á beinvef líkamans. Er ísótóp-rann- sókn þessi mun nákvæmari hvað varðar mein- vörp til beina en hin klassiska röntgen-mynda- taka. Þá eru og miklar vonir bundnar við frekari framfarir innan ónæmisfræðinnar. Má ætla að á komandi árum verði unnt að greina í blóðvökva mótefni gegn krabbameinsfrumum og þannig greina krabbamein og eða meinvörp þess á frumstigi. II. Dreifing krabbameinsfrumna við skurðaðgerð. Rannsóknir hafa sýnt fram á æxlisfrumur í blóði sjúklinga við skurðaðgerð, þ.e.a.s. við brottnám frumæxlis. Er því mikilsvert að skurð- læknar leitist við að meðhöndla æxli með varúð meðan á aðgerð stendur og eða rjúfa blóð- rennslið til og frá æxlinu áður en það er fjarlægt, Þórarinn E. Sveinsson. ■Wttobtéi tim •heilbri§ðismói 29

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.