Heilbrigðismál - 01.09.1984, Page 16
Krabbamemsfélagið / Ljósmyndannn
Hús Krabbamemsíélagsins vígt með viðhöfn
Á annað þúsund manns komu í húsið helgina 31. ágúst til 2. september
Föstudaginn 31. ágúst var haldin
virðuleg vígsluhátíð í hinu nýja húsi
sem Krabbameinsfélagið hefur
eignast að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Athöfnin hófst með ávarpi formanns
Krabbameinsfélags íslands, dr.
Gunnlaugs Snædal yfirlæknis. Síðan
flutti heilbrigðisráðherra, Matthías
Bjarnason, árnaðaróskir stjórn-
valda.
Þá rakti formaður bygginganefnd-
ar hússins, Gunnlaugur Geirsson
yfirlæknir, sögu byggingafram-
kvæmdanna og lýsti húsinu. Sagði
hann að árið 1980 hafi verið áformað
að byggja við húseignir félagsins í
Suðurgötu, en í ljós hefði komið að
nægilegt rými fékkst ekki þar. Því
var sótt um lóð sem Reykjavíkur-
borg úthlutaði félaginu vorið 1981
við Hvassaleiti. Horfið var frá því að
byggja þar þegar þetta hús við Skóg-
arhlíð bauðst félaginu í árslok 1982,
sem næst tilbúið undir tréverk.
Vinna við innanhúsfrágang hófst í
desember 1983 og flutt var í húsið í
lok ágúst 1984. Þær þrjár hæðir sem
nú voru teknar í notkun eru um 1600
fermetrar að flatarmáli, en húsið allt
um 2600 fermetrar. Byggingakostn-
aður nemur nú 47 milljónum króna,
og hefur hann þá ekki verið fram-
reiknaður til núgildandi verðlags.
Dr. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri
SKÝRR, greindi því næst frá tölvu-
gjöf til Krabbameinsfélagsins og
Ottó A. Michelsen afhenti formanni
félagsins lista með nöfnum gefend-
anna. Síðan flutti Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti íslands, ávarp og vígði
húsið. Tveir fulltrúar frá krabba-
meinsfélögunum á hinum Norður-
löndunum, Ottar Jacobsen frá Nor-
egi og Niilo Voipio frá Finnlandi
voru viðstaddir vígsluna og fluttu
ávörp. Þeir sögðu m.a. að aðrar
þjóðir gætu lært mikið af baráttu
íslendinga gegn krabbameini, og
vænst væri mikils af því starfi sem
Krabbameinsfélagið stefndi að í
þessu húsi.
Athöfninni lauk með því að Pétur
Sigurgeirsson, biskup íslands, bless-
aði húsið og búnað þess, starfsemina
og starfsfólkið. Kynnir á vígsluhátíð-
inni var Sigurður Björnsson læknir.
Þess má geta að Krabbameinsfé-
laginu bárust margar góðar gjafir í
tilefni vígslunnar.
Aðalfundur Krabbameinsfélags
íslands var haldinn í hinu nýja húsi
laugardaginn 1. september. Mættir
voru fulltrúar frá 14 aðildarfélögum,
auk gesta, alls um fimmtíu manns.
Nú eru um tíu þúsund manns í þeim
félögum sem eiga aðild að Krabba-
meinsfélagi íslands.
í skýrslu formanns félagsins, dr.
Gunnlaugs Snædal, kom fram að
starfsemi félagsins síðustu misseri
hefur mótast mjög af byggingafram-
kvæmdunum. Reynt var að halda
starfseminni sem mest í fyrra horfi
en ekki var unnt að taka upp nýja
starfshætti eða starfsþætti. Hið nýja
hús gjörbreytir möguleikum félags-
ins. Formaðurinn sagði að ýmissa
breytinga væri að vænta á næstunni.
Um þriðjungur af tekjum félags-
ins kemur af happdrætti, tæpur
þriðjungur er ríkisframlag en að
16 HEILBRIGÐISMÁL 3/1984