Heilbrigðismál - 01.09.1984, Side 18
Krabbameinsfélagið / Ljósmyndaimn
Okkur öllum til framtíðarheilla
Ávarp Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands
Hverja stund sem við lifum verður
að hugsa fyrir framtíðinni, og helst
af stórhug. Sé hugsað smátt gerist
fátt og lítill verður andlegur eða ver-
aldlegur auður að miðla af, þegar
tíminn líður með okkur sjálfum á
æviskeiði og þá jafnframt inn í ævi-
skeið annarra og nýrri manna.
Besti minnisvarði sérhvers manns
er að hafa þorað að hugsa í víddum
sem ef til vill sjást ekki innan eigin
sjónmáls, í víddum sem einhvern
tíma nást og verða að sjálfsögðum
sjóndeildarhring.
Leit mannsins að þekkingu er eðli
hans sjálfs. Hversu oft í
mannkynssögunni hefur einmitt sú
leit orðið að nýrri og víðtækari þekk-
ingu og aldrei má gleyma því að með
og í henni felst öryggi. Það vitum við
öll sem stöndum hér nú í nýju húsi
Krabbameinsfélags íslands, sam-
huga um að afla enn víðtækari þekk-
ingar á sjúkdómi og árangursríkra
ráða til lækninga. Við sfefnum að
því marki að geta hrist af okkur ótt-
ann við að óttast hann og öðlast
öryggi þekkingarinnar.
Við erum hér vitni að stórhug sem
hefur borið árangur á ótrúlega
skömmum tíma, stórhug þjóðar sem
með átaki safnaði fé til að eignast
þetta hús til vísindalegra rannsókna
og ennfremur stórhug og árvekni
nokkurra einstaklinga — innlendra
og erlendra — sem gengið hafa fram
fyrir skjöldu og fært þessari vísinda-
stöð gjöf sem seint verður full-
þökkuð og aldrei ofmetin. Því hver
veit nema að einmitt fyrir þessar
gjafir verði í þessu sérstaka húsi
unnt að finna lausnir sem koma öllu
mannkyninu til góða.
Mér er ljúft að lýsa því yfir að
starfsemi Krabbameinsfélags íslands
er hafin í nýju húsi þess við Skógar-
hlíð í Reykjavík, húsinu sem þjóðin
gaf sjálfri sér, okkur öllum til fram-
tíðarheilla.
Forseti íslands kemur í hið nýja
hús Krabbameinsfélagsins. Með
Vigdísi eru Gunnlaugur Snædal
formaður Krabbameinsfélags Is-
lands og sonardætur hans.
18 HEILBRIGÐISMAL 3/1984