Heilbrigðismál - 01.09.1984, Side 21
Á hverju ári deyja um og yfir 300
manns úr krabbameini, en um 600
ný tilfelli eru skráð. Upplýsingar
Krabbameinsfélagsins sjálfs sýna að
nýgengi brjóstakrabbameins hefur
aukist síðustu þrjátíu ár, hins vegar
hefur nýgengi og dánartíðni legháls-
krabbameins lækkað mjög verulega,
sem rennir sterkum stoðum undir
gagnsemi þeirrar sjúkdómaleitar
sem Krabbameinsfélagið hefur rek-
ið.
Á síðustu árum hefur af hálfu
ríkisvaldsins verið reynt að bæta að-
stöðu til krabbameinsmeðferðar.
Hefur verið gert átak til að koma
upp meðferðaraðstöðu á Landspít-
ala sem er í líkingu við það sem
annars staðar gerist. Deild með sér-
stökum yfirlækni hefur verið stofnuð
vegna þessa verkefnis, en það
skortir bæði húsnæði og tækjabúnað
til að deildin geti verið rekin með
þeim krafti og af þeim myndarbrag
sem þarf. Vissulega eru ekki allir
sannfærðir um að krabbameinsmeð-
ferðin skili þeim árangri sem til er
stofnað. Eins og er er það sú eina
leið sem við þekkjum til að berjast
Eitt af listaverkunum sem prýða
nýja húsið.
við sjúkdóminn þegar hann er kom-
inn.
Víða í heiminum er nú spurt hvar
lausnarorðið liggi í sambandi við
krabbamein og ntargar getgátur eru
á lofti. Við höfum ekki getað lagt
mikinn skerf í þær rannsóknir, en ég
tel að sú rannsóknarstarfsemi sem
fram hefur farið á Rannsóknastofu
Háskólans í frumulíffræði á eðli
illkynja ástands krabbameinsfrumna
sé þess háttar að hana eigi að styðja,
því til mikils er að vinna sé lausnar-
orðið þar.
Margir telja að með ákveðnu for-
varnarstarfi sé hægt að seinka til-
komu krabbameins, eða ef til vill
fyrirbyggja það, og því hefur Al-
þjóða heilbrigðismálastofnunin tek-
ið þetta mál upp sérstaklega í sam-
vinnu við nokkrar þjóðir, þar á
nteðal ísland. Fyrr á þessu ári und-
irritaði ég samning við Alþjóða
heilbrigðismálastofnunina um þátt-
töku íslands og samvinnu við stofn-
unina um forvarnarstarf vegna lang-
vinnra sjúkdóma.
Hér er um að ræða verkefni sem
spannar ekki aðeins yfir það svið,
sem Krabbameinsfélag íslands hefur
fengist við heldur einnig yfir fleiri
sjúkdómasvið. Vill Alþjóða heil-
brigðismálastofnunin með þessu
nýja verkefni kanna hvort forvarnar-
starf á í framtíðinni að beinast að
einstökum sjúkdómum eða sjúk-
dómaflokkum. Ráðuneytið hefur
þegar leitað samvinnu við Krabba-
meinsfélag fslands í þessu máli og
væntir það góðs af því samstarfi. Hér
er að sjálfsögðu um langtímamark-
mið að ræða og verður að koma til
samvinna fjölmargra aðila til þess að
sá árangur náist sem til er ætlast.
Ég óska Krabbameinsfélagi ís-
lands til hamingju með þessi glæsi-
legu nýju húsakynni og ég óska
starfsfólki félagsins til hamingju með
gjörbreytta starfsaðstöðu. Ég vænti
þess að sú góða samvinna sem verið
hefur milli heilbrigðisyfirvalda og
Krabbameinsfélagsins haldist, því
vissulega vinnunt við öll að sama
markmiði.
Krabbameinsfélagið
ræður forstjóra
Dr. G. Snorri Ingimarsson
læknir hefur verið ráðinn for-
stjóri Krabbameinsfélags ís-
lands. Hér er um að ræða nýja
stöðu sem stjórn félagsins taldi
nauðsynlegt að stofna til vegna
aukinna umsvifa. Verkefni for-
stjóra eru m.a. yfirstjórn og
samhæfing núverandi starfs-
deilda og væntanlegra deilda,
yfirumsjón með vísindalegum
verkefnum, stefnumörkun um
verkefnaval félagsins, gerð
fjárhagsáætlunar og ársskýrslu
svo og stjórn tölvudeildar.
Snorri lauk læknanámi frá
Karolinska læknaháskólanum í
Stokkhólmi árið 1976 og varði
doktorsrit við sama háskóla
árið 1980. Hann hlaut viður-
kenningu sem sérfræðingur í
krabbanteinslækningum í Sví-
þjóð og á ístandi árið 1982.
Snorri starfaði á geislalækn-
ingadeild Röntgendeildar
Landspítalans frá 1982 til vors
1984. Jafnframt vann hann að
verkefnum fyrir Krabbameins-
félagið og var í framkvæmda-
nefnd Landsráðs gegn krabba-
meini. Síðustu mánuði hefur
hann starfað við Karolinska
sjúkrahúsið í Stokkhólmi og
var útnefndur dósent við há-
skólann þar í haust. Eiginkona
Snorra er Kolbrún Finnsdóttir
og eiga þau tvö börn.
HEILBRIGÐISMAL 3/1984 21