Heilbrigðismál - 01.09.1984, Síða 22
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ / Hafstemn Guðmundsson
Krabbameinsfélagið á allt gott skilið
Rætt við Ottó A. Michelsen
Viðmælandi okkar hefur mikið
komið við sögu Krabbameinsfé-
lagsins síðustu tvö árin. Hann gegndi
veigamikilli stöðu í þjóðarsöfnun-
inni haustið 1982, var upphafsmaður
fyrirtækjasöfnunar sem hófst í Iok
þess árs og átti hugmynd að tölvu-
gjöf til Krabbameinsfélagsins 1984.
Þessi maður, Ottó A. Michelsen
fyrrverandi forstjóri IBM á íslandi,
féllst á að ræða um tengsl sín við
Krabbameinsfélagið.
Ottó er löngu kunnur fyrir störf
sín að félagsmálum, ekki síst á vett-
vangi kirkjunnar. En hvernig hófst
þátttaka hans í baráttunni gegn
krabbameini?
Þegar Krabbameinsfélagið boðaði
fulltrúa sextíu félagasamtaka til
stofnfundar Landsráðs gegn krabba-
meini, í maímánuði 1982, mætti ég á
þann hátíðlega fund sem stjórnarfor-
maður Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Ég var því nokkuð kunnugur bar-
áttumálinu þegar einn úr fram-
kvæmdanefnd Landsráðsins, Þor-
steinn Þálsson alþingismaður, hring-
di í mig í ágústmánuði, en þá var ég
staddur á Sauðárkróki. Hann fór
þess á leit við mig að ég yrði í for-
svari fyrir söfnunarstarfinu í höfuð-
borginni, og féllst ég á það.
Óhætt er að segja að það hafi
verið bjartsýnn og dugandi hópur
sem valdist í Reykjavíkurnefndina.
Með aðstoð þúsunda karla og
kvenna tókst að safna í höfuðborg-
inni 4,5 milljónum króna af þeim
13 milljónum sem söfnuðust alls
hinn 30. október 1982.
Hvenær fæddist hugmyndin um
sérstaka söfnun meðal fyrirtækja?
Að lokinni vel heppnaðri lands-
söfnun færði ég þessa hugmynd í tal
við nokkra kunningja mína. Sigurð-
ur Helgason forstjóri Flugleiða var
svo vinsamlegur að veita forystu
nefnd valinkunnra manna sem tóku
þetta verk að sér. Hér er ekki ástæða
til að rekja starf nefndarinnar nánar,
en á nokkrum mánuðum var safnað
6,7 milljónum króna meðal fyrir-
tækja og félagasamtaka. Þessi fjár-
hæð var afhent Krabbameinsfé-
laginu í júlí 1983 við athöfn í húsinu
sem félagið hafði þá nýlega fest kaup
á.
Hús þetta, að Skógarhlíð 8, var
annað af tveimur húsum sem við
Þorsteinn ræddum um að gætu verið
hentug fyrir félagið, þegar hann
hringdi í mig sumarið 1982. Þá var
stefnt að nýbyggingu við Hvassaleiti,
en það er skemmtileg tilviljun að
félagið skuli einmitt hafa fest kaup á
þessu húsi. Ég tel það hafa verið vel
ráðið.
Hvað um þátt þinn í tölvugjöf til
Kra bbameinsfélagsins ?
Gunnlaugur Geirsson, yfirlæknir
Frumurannsóknastofu Krabba-
meinsfélagsins, kom að máli við mig
haustið 1983 og ráðfærði sig við mig
um nokkur atriði vegna erindis sem
hann átti að flytja í Mexíkó. Þá gerði
ég mér grein fyrir því hve gífurlega
verðmætum upplýsingum hefur ver-
ið safnað hjá Krabbameinsfélaginu
síðustu áratugi. Ég leitaði ráða hjá
Jakob Sigurðssyni, forstöðumanni
tölvudeildar Flugleiða og síðan
bættist dr. Jón Þór Þórhallsson for-
Qefend ur töR’ub'Cmacíar
Jt$ci6bamd usfc [aqs]s faríðs
jlpplící Dota ‘ÍGcardi.'B.iióarikjuniini
(Bankcmc> EDB Ccntr.il DJunið'rlai
‘BrownsOpemting Systrm 5<ni(« Eiuilniici
‘Bmnal'ola/cl.iii bl.niðs
'FímsL’ípa/cl.iii ísl.nDs
ílðiiy ‘TraJiiiij cVinoitm'
‘Erlcsscn tnformalm Systtin S'víþjéd
Tluglddir
CþsliJ. JdmsciL
llciitiilishrlíi
I.Talituson
I BM i islandi
Jvristj.in 0.5k.iiifíör?
„A'lVótÖltlJll
JVorJic CompufcrConsultintj.TaniitMii
OltóAJMiclidscu
‘TtaðíóbúÖiii
ianibarib íslcnskra 5ainvinimfil<u!.i
ijócátrvcjgiiicjifil.uiíslaiDs
dkýrsluvcl.tr rikisins og Kcyk’javílciirborp.ii'
Softwre ACr 'þvslc.ilattDi
5farfsincnii tíbuMlðar I B.kf
'Tc’pJata.’T'.iiinuVku
órfölvtitai’ni
22 HEILBRIGÐISMÁL 3/1984