Heilbrigðismál - 01.06.1986, Síða 8
HEILBRIGÐISMÁL / Jónas Ragnarsson
Tóm tjara?
Áfengis- og tóbaksverslun ríkis-
ins birti í maí skrá um tjöru, nikótín
og kolsýrling í reyk sígaretta á ís-
lenskum markaði „til upplýsinga
fyrir tóbaksneytendur", eins og
segir í auglýsingu verslunarinnar.
Skrá þessi, sem byggir á upplýsing-
um frá umboðsmönnum tóbaks, er
birt án ábyrgðar, enda er ekki enn
aðstaða hér á landi til að mæla
magn skaðlegra efna í tóbaki.
Þetta er í fyrsta sinn sem ÁTVR
birtir slíka skrá, en hliðstæðar upp-
lýsingar birtust í Heilbrigðismálum
fyrir tveim árum (4. tbl. 1984). í
sama hefti var grein eftir Porstein
Blöndal og Jónas Ragnarsson, en
hún hét „Allt sama tóbakið? Eru
léttu sígaretturnar hættuminni en
hinar?" Þar segir meðal annars að
tjara sé samheiti á reykögnum og
úða tóbaksreyksins, en í henni eru
mörg krabbameinsvaldandi efni.
Áætla má að minni tjara í síga-
rettum dragi úr hættu á lungna-
krabbameini, og minnki hósta og
slímmyndun. Á hinn bóginn er
ekkert sem bendir til þess að hætt-
an á mæði og teppu í lungnapípum
minnki. Talið er að tjörulitlar síga-
rettur dragi ekki úr líkum á krans-
æðastíflu. I lok greinarinnar er
komist að þeirri niðurstöðu að eng-
in skaðlaus sígaretta sé til. Síðan
segir: „Það er því lang best að byrja
aldrei að reykja, næst best að
hætta, en þriðji skásti kosturinn er
að velja þær tegundir af sígarettum
sem eru tjöruminni en aðrar. Það
er þó háð því skilyrði að reyking-
arnar séu ekki auknar frá því sem
áður var."
Hér til hliðar er „íslenskum"
sígarettum raðað eftir tjöru í reyk
hverrar sígarettu, mælt í milli-
grömmum. Miðað er við tjöru í
þeim reyk sem reykingamaðurinn
sogar að sér, svonefndum aðal-
reyk. Allar mælingar eru gerðar í
reykingavélum samkvæmt ákveðn-
um stöðlum sem engan veginn má
treysta að falli að reykingavenjum
einstakra neytenda. Rétt er að taka
fram að mælingarnar eru ekki fylli-
lega sambærilegar innbyrðis.
-F-
22,8 Gauloises (án síu)
Camel (án síu) 21,2 20,0 Prince
Winston 19,0 Welcome Red 18,8 Winston 100's 18,6 19,0 Pall Mall (án síu) 18,6 Welcome Blue 18,5 Victory
Camel 17,6 More Menthol 17,1 Rothmans 16,5 Kool 16,0 Dunhill 15,5 Gold Coast 15,0 HB Crown 15,0 Royale Menthol 14,9 Prince Lights 14,0 Gauloises 13,9 17.4 More 16,7 Salem 16.4 Craven A 15.5 Viceroy 15,0 Lucky Strike 15,0 Gold Coast Menthol 14,9 Royale 14,1 S.G. Lights 14,0 S.G. Export
Stanton 12,8 Dunncap 12,0 Kim Menthol 12,0 13,0 Kent 12,2 Gitanes 12,0 Kim Mild
Winston Lights 10,8 11,0 Gold Coast Lights
Viceroy Lights 9,0 Camel Lights 8,9 Dunncap Lights 8,4 9.4 Vantage 9,0 Salem Lights 8.5 Kent Lights 7,9 Merit Menthol
Royale Lights 4,9 Milligrömm af tjöru í meginreyk hverrar sígarettu.
8 HEILBRIGÐISMÁL 2/1986