Heilbrigðismál - 01.06.1986, Side 16
með fæðu og öndunarlofti. Að
jafnaði eru geislaskammtar frá
þeim mjög litlir og skipta líklega
litlu máli. Þrátt fyrir það að
reykingamenn fái þrefaldan
skammt í lungnaslímhúð, miðað
við þá sem ekki reykja, er geisla-
skammturinn samt sem áður
óverulegur. Markverð er þó sú til-
gáta að pólóníum-210 setjist í yfir-
borð berkjuslímhúðar og valdi þar
allháum geislaskömmtum, sérstak-
lega hjá reykingamönnum. Hefur
þar verið talað um geislaskammta
allt frá 0,04 og upp í 30 millisívert á
ári.
Mannkynið hefur í aldanna rás
lagað sig að náttúrulegri geislun og
telst hún því lítið skaðleg. Þó má
geta þess að geislun er talin eiga
einhvern þátt í þeim stökk-
breytingum sem verða sífellt á
erfðafrumum.
Geislun af mannavöldum.
Auk geislunar af völdum náttúr-
unnar hefur maðurinn bætt
nokkru við sjálfur og skal þar helst
nefnd geislun vegna notkunar jón-
andi geisla í læknisfræði, bæði
geislagreiningu (t.d. röntgen-
myndatöku) og geislameðferð. Að
meðaltali nemur þessi geislun um
0,1 millisíverti á ári. Einnig er notk-
un geislavirkra efna í vísindum,
iðnaði og landbúnaði allveruleg og
fer vaxandi. Notkun geislavirkra
Helstu þættir
geislunar
Meðaltal á mann á ári
Náttúruleg geislun:
Geimgeislun 0,3 mSv
Geislun frá jarðvegi 0,4 mSv
Frá húsveggjum 0,5 mSv
Innri geislun 0,2 mSv
Geislun af mannavötdum:
Röntgenrannsóknir 0,1 mSv
Geislalækningar 0,01 mSv
■Frá kjarnorkuverum 0,01 mSv
efna í daglegu lífi er einnig vax-
andi. Skal nefnd sem dæmi notkun
geislavirkra efna í sjálflýsandi
úrum og klukkum. Sú notkun hef-
ur breytst nokkuð á undaförnum
árum í þá átt að nota sífellt mein-
lausari efni. Geislavirk efni eru
einnig notuð í sumum gerðum
reykskynjara, í sjálflýsandi út-
gönguskiltum samkomuhúsa og
víðar. Nokkur jónandi geislun
myndast einnig í radartækjum,
sjónvarpstækjum og öðrum mynd-
lömpum sem nýta háa rafspennu.
Þetta er þó allt óverulegt og skapar
áreiðanlega enga geislahættu fyrir
mannkynið í heild. Orkufram-
leiðsla í kjamorkuverum eykur
nokkuð geislaálag mannkyns, að
vísu lítið ef allt gengur eðlilega, en
þetta geislaálag getur orðið mikið,
ef óhöpp verða. Þess má geta hér
að Norðmenn hafa reiknað út að
þar í landi verði geislun af völdum
óhappsins í Sovétríkjunum vorið
1986 jafn mikil samanlagt á næstu
fimmtíu árum eins og náttúruleg
geislun er á einu ári. I rekstri kjarn-
orkuvera er og verður óhjákvæmi-
lega alltaf einhver geislahætta, en
hana má minnka mjög með ströng-
um og skipulögðum vamaraðgerð-
um, sem verða að sjálfsögðu að
vera óháðar landamærum.
Kjamorkusprengjur og tilraunir
með þær eru svo alveg sér á báti.
Þær hafa bætt nokkru við geisla-
álag mannkyns. Fyrir um það bil
tuttugu árum mældist talsverð
geislun í mjólk og öðmm matvæl-
um en einnig í andrúmslofti og
regnvatni, vegna slíkra tilrauna.
Síðan farið var að gera þessar til-
raunir neðanjarðar má þó segja að
slík geislun sé vart mælanleg.
Geislun kæmi þó fljótlega fram ef
tilraunir færu úr böndum á ein-
hvem hátt. Óhætt er að segja, að
öll umræða um geislaálag á friðar-
tímum hverfi í skuggann fyrir til-
hugsun um þá skelfingu fyrir
mannkynið sem geislun frá kjarn-
orkusprengju veldur.
Guðmundur S. Jónsson er forstöðu-
maður eðlisfræði- og tæknideildar
Landspítalans. Guðmundur er bæði
eðlisfræðingur og læknir að mennt.
Hann var forstöðumaður Geislavarna
ríkisins frá 1965 til 1982.
Áður en
æfingar
hefjast
Grein eftir
Grím Sæmundsen
Áhugi á hvers konar heilsurækt
hefur aukist í vestrænum ríkjum
undanfarin ár. Nú þykir sjálfsagt
að fólk hlaupi, hjóli, syndi, fetti sig
og bretti í eróbik tímum saman og
pumpi lóð löðursveitt. Hægt er að
fullyrða, að bylting hafi orðið á við-
horfum fólks til hreyfingar, sér til
heilsubótar. íslendingar virðast
ekki eftirbátar annarra í þessum
efnum.
Ef íþróttaiðkun íslenskra karla á
aldrinum 46—61 árs árin 1967—68
og 1979—80 er borin saman, kemur
í ljós að hún hefur aukist um 50%,
samkvæmt niðurstöðum úr rann-
sóknum Hjartaverndar (1). Yfir-
gnæfandi hluti þeirra karla, sem
stunda íþróttir, hefur ekki einkenni
um kransæðasjúkdóm, samkvæmt
sömu rannsókn. Þá er athyglisvert,
að rúmlega þriðjungur þeirra sem
iðka íþróttir á þessum aldri synda
eða stunda gönguferðir og útivist,
en hreyfing af því tagi er einmitt
16 HEILBRIGÐISMÁL 2/1986