Heilbrigðismál - 01.03.1994, Blaðsíða 19
Fimir fætur, aukið úthald, bætt
heilsa, lengra líf.
nú var efnt til í 78. sinn, en meðal
nýlegri viðburða á þessu sviði eru
Húsasmiðjuhlaupið, Landsbanka-
hlaupið, Heilsuhlaup Krabba-
meinsfélagsins, Akraneshlaupið,
Kvennahlaup ÍSÍ, Jöklahlaupið á
Höfn, Brúarhlaupið á Selfossi og
síðast en ekki síst Reykjavíkur-
maraþon. Þátttakendur í því voru
214 árið 1984 en á fjórða þúsund í
sumar, fólk á öllum aldri, bæði Is-
lendingar og útlendingar. Þetta
Reykjavíkurmaraþonið í ágúst er
orðið ómissandi í bæjarlífinu.
Varla er hægt að hugsa sér mið-
næturhlaup víða í heiminum. Það
var í Reykjavík á Jónsmessunótt í
annað sinn.
gefur sennilega góða mynd af vax-
andi vinsældum götuhlaupa.
Misjafnt er hvers konar líkams-
rækt hentar hverjum og einum en
óneitanlega virðast hlaup vera í
tísku. Þeir sem komast á bragðið
geta vart verið án slíkrar hreyfing-
ar, sem getur orðið að eins konar
fíkn. Óttar Guðmundsson læknir
(og hlaupari) hefur lýst því svo að
„heimur hlaupanna einkennist af
algleymi, slökun og frelsi sem allir
leita eftir." Það munar um minna!
Víðavangshlaup ÍR er vorboði
hlaupara. Það hefur verið haldið á
sumardaginn fyrsta í nær átta ára-
tugi.
Allir geta spreytt sig á styttri vega-
lengdunum í götuhlaupunum,
gengið, skokkað eða hjólað. Aðal-
atriðið er að hreyfa sig og vera
með. Myndin til hægri er úr
Heilsuhlaupinu.
HEILBRIGÐISMÁL 1-2/1994 19