Heilbrigðismál - 01.07.2007, Blaðsíða 12
uossje>|SQ jeiup
HÁSKÓLINN HEFUR
TEKIÐ VIÐ REKSTRI
RANNSÓKNA-
STOFUNNAR
Háskóli (slands og Krabba-
meinsfélag (slands hafa
endurnýjað samstarf sitt um
kennslu og rannsóknir I
heilbrigðisvísindum. Tilgang-
urinn með gerð samningsins er
að halda áfram að efla samstarf
læknadeildar Háskóla fslands og
Krabbameinsfélags íslands með
það fyrir augum að nýta sem
best sérþekkingu, kunnáttu,
efnivið og aðstöðu sem
samningsaðilar búa yfir.
Samningurinn er til fimm ára
en tveir áratugir eru frá því að
Háskólinn og Krabbameins-
félagið hófu með sér formlegt
samstarf.
Helstu nýmæli samningsins
eru þau að rekstur Rannsókna-
stofu Krabbameinsfélagsins I
sameinda- og frumulíffræði
flyst í umsjá Háskóla íslands frá
byrjun þessa árs. Tveir prófess-
orar læknadeildar hafa
rannsóknaaðstöðu á rannsókna-
stofunni en hún verður áfram til
húsa hjá Krabbameinsfélaginu I
Skógarhlíð næstu tvö árin. Átta
meistaranemar og fimm
doktorsnemar I rannsókna-
tengdu framhaldsnámi vinna
um þessar mundir að rann-
sóknaverkefnum á vegum
rannsóknastofunnar en
heildarfjöldi nema er orðinn um
sextíu.
Ennfremur er kveðið á um
það I samningnum að unnið
verði að sameiginlegri stefnu-
mótun um vísindi og rann-
sóknastörf sem tengjast
markmiðum samningsins til að
efla rannsókna- og vísindastarf
á háskólastigi. Sérstaklega
verður tekið mið af vísinda- og
menntastefnu Háskólans. Þá
munu samningsaðilar leitast við
að efla rannsóknasamstarf við
aðra aðila innanlands og utan.
Lífsýnasafn Krabbameins-
félagsins mun enn um sinn
verða í vörslu félagsins. í
safninu eru sýni frá um tólf
þúsund einstaklingum.
Marta Guðmundsdóttir,
Grindvíkingur á fertugs-
aldri, vann það einstæða
afrek að ganga þvert yfir
Grænland, þrátt fyrir að
hafa greinst með krabba-
mein árið 2005.
GEKK YFIR GRÆN-
LANDSJÖKUL
Marta Guðmundsdóttir kom
til Reykjavíkurflugvallar með
flugvél frá Kulusuk á Grænlandi
13. júní, að lokinni göngu sinni
yfir Grænlandsjökul. Sérstök
móttökuathöfn var I húsi
Krabbameinsfélagsins við
Skógarhlíð. Þarfögnuðu
ættingjar, vinir og fleiri með
henni þessu mikla afreki.
Marta, sem er úr Grindavík,
greindist með brjóstakrabba-
mein I október 2005 en hefur
lokið erfiðri meðferð. Ferðin yfir
Grænlandsjökul var farin á
vegum Krabbameinsfélags
Islands með stuðningi Deloitte,
66°N og fleiri fyrirtækja.
Markmiðið var tvíþætt, að vekja
konur til umhugsunar um
mikilvægi þess að fara reglulega
I skoðun hjá Krabbameins-
félaginu og að safna fé til að
berjast gegn brjóstakrabba-
meini.
Marta var eini (slendingurinn í
sjö manna hópi sem lagði á
jökulinn 23. maí. Gönguleiðin
var alls um 600 kílómetrar og
var farið eftir 66. breiddargráðu,
þvert yfir jökulinn, frá vestri til
austurs.
Meðan á göngunni stóð voru
seld póstkort til styrktar Krabba-
meinsfélaginu, en Marta
undirritaði þau og póstlagði I
Tassilaq þegar hún kom niður af
jöklinum. Hvert kort kostaði
1000 krónur og renna tekjurnar
óskertar til rannsókna á
brjóstakrabbameini.
NÝTT FÉLAG:
FRAMFÖR
Krabbameinsfélagið Framför
var stofnað 12. febrúar 2007 og
fékk aðild að Krabbameinsfélagi
(slands á aðalfundi í maí.
Formaður félagsins er Oddur
Benediktsson.
Markmið félagsins er að efla
rannsóknir á krabbameini I
blöðruhálskirtli og styðja I
hvívetna baráttuna gegn því.
Tilgangi sínum hyggst félagið
einkum ná með því „að stofna
og reka sjóð til þess að efla
rannsóknir á krabbameini (
blöðruhálskirtli og þeim þáttum
sem geta orsakað meinið, fræða
félagsmenn og almenning um
meinið og varnir gegn því og
stuðla að aukinni menntun
heilbrigðisstétta og skyldra
greina I greiningu, fyrirbyggj-
andi aðgerðum og meðferð
meinsins." Til þess að ná settu
markmiði hefur félagið stofnað
Styrktarsjóð Krabbameinsfélags-
ins Framfarar og er söfnun (
hann hafin.
BREYTINGAR
Á STJÓRN
Áaðalfundi Krabbameins-
félags (slands, sem haldinn var
4. maí, urðu nokkrar breytingar
á stjórn félagsins.
Jóhannes Tómasson upplýs-
ingafulltrúi og Þorvaldur
Árnason lyfsali gáfu ekki kost á
sértil endurkjörs, en þeir hafa
verið í stjórninni í sjö ár.
(þeirra stað komu í stjórnina
Nanna Friðriksdóttir hjúkrunar-
fræðingur og formaður
Krabbameinsfélags Reykjavíkur
og Þóra Hrönn Njálsdóttir
formaður Krabbameinsfélags
Hafnarfjarðar og nágrennis, en
hún verður gjaldkeri stjórn-
arinnar. Aðrir stjórnarmenn eru
Sigurður Björnsson yfirlæknir,
sem er formaður, Hreiðar Már
Sigurðsson forstjóri, sem er
varaformaður, Birna Flygenring
hjúkrunarframkvæmdastjóri,
sem er ritari, Guðrún Sigurjóns-
Sigurður Björnsson
formaður Krabbameins-
félags íslands í ræðustól á
aðalfundi félagsins í vor.
dóttir hjúkrunarfræðingur og
formaður Samhjálpar kvenna og
Páll Helgi Möller yfirlæknir.
Varamenn I stjórn eru
Álfheiður Hjaltadóttir formaður
Krabbameinsfélags Austurlands
og Friðrik Vagn Guðjónsson
læknir og varaformaður
Krabbameinsfélags Akureyrar
og nágrennis.
MEÐALALDUR
VIÐ GREININGU
ER TÆP 65 ÁR
Á síðustu fjörutíu árum hefur
meðalaldur við greiningu
krabbameins aukist hjá körlum
úr rúmum 64 árum I rúm 67 ár
en nánast staðið í stað hjá
konum og er nú rúm 62 ár. (
heild er meðalaldurinn nú tæp
65 ár, samkvæmt nýjum tölum
frá Krabbameinsskrá Krabba-
meinsfélags (slands.
Þeir karlar sem greinast með
krabbamein í blöðruhálskirtli
eru að meðaltali tæplega 72
ára, með ristilkrabbamein
tæplega 71 árs og með
lungnakrabbamein um 68 ára.
Konur sem fá ristilkrabbamein
eru tæplega 72 ára, lungna-
krabbamein 67 ára og brjósta-
krabbamein tæplega 61 árs.
Meðalaldur við greiningu
lungnakrabbameins hjá körlum
hefur hækkað um meira en tíu
ár á síðustu áratugum og um
nær fimm ár hjá konum. Minni
breytingar hafa verið varðandi
önnur algengustu krabbameinin
hér á landi.
12 HEILBRIGÐISMÁL 1/2007