Heilbrigðismál - 01.07.2007, Page 20

Heilbrigðismál - 01.07.2007, Page 20
KRABBAMEIN í RISTLI OG ENDAÞARMI Horfurnar hafa gjörbreyst síðustu áratugi Krabbamein i ristli og endaþarmi eru um tíundi hluti illkynja æxla á íslandi. Þetta eru meðal algengustu krabbameina sem greinast hjá vestrænum þjóðum og eru al- geng orsök dauðsfalla. Á árunum 2001- 2005 var aldursstaðlað nýgengi þessara krabbameina hér á landi 31,6 af 100.000 hjá körlum og 22,1 af 100.000 hjá konum. Þrátt fyrir aukningu sjúkdómstilfella síð- ustu áratugina hefur dánartíðni af völdum sjúkdómsins heldur lækkað. Meðalaldur sjúklinga við greiningu er um 71 ár. Ristillinn er 1-1,5 metrar á lengd. Hann tekur við af smáþörmunum og endar í endaþarminum, sem er neðsti hluti þar- manna (um 15 sentimetrar) og nær að endaþarmsopi. Mest öll næring fæðunnar er frásoguð í smáþörmunum, sem merkir að næringin flyst frá holrými smáþarma og út í blóðið. LÍFSHÆTTIR HAFA ÁHRIF Flestir sem greinast með ristil- og enda- þarmskrabbamein eru eldri en fimmtugir og fáir eru í einhverjum sérstökum þekktum áhættuhópi. Erfðafræðilegir þættir gegna miklu hlut- verki í vissum gerðum ristil- og endaþarms- krabbameins og hafa vísindamenn sýnt fram á ákveðnar genabreytingar sem auka hættuna á sjúkdómnum. Erfðafræðilegir þættir eru þó ekki taldir orsaka nema um eða yfir fimm af hundraði allra ristil- og endaþarmskrabbameina. Sjúklingar með langvinna þarmabólgu- sjúkdóma, þ.e. sáraristilbólgu (colitis ulce- rosa) og Crohn's sjúkdóm eru í aukinni hættu á að fá ristil- og endaþarmskrabba- mein. Lífshættir, t.d. matarvenjur, eru taldar hafa áhrif á þessa áhættu. Því hefur verið haldið fram að of lítil neysla trefja væri áhættuþáttur en rannsóknir hafa ekki staðfest það. Rannsóknir seinni ára benda til að offita, lítil líkamleg hreyfing, mikil áfengisneysla, lítil neysla fólinsýru og mikil neysla á rauðu kjöti auki líkurnar á myndun ristilkrabbameins. Mikil neysla ávaxta og grænmetis er talin hafa verndandi áhrif og á síðustu árum hefur komið í Ijós að lyfið aspirín (t.d. magnyl) virðist einnig hafa já- kvæð áhrif. Langflest illkynja æxli í ristli og enda- þarmi eru kirtilmyndandi krabbamein og eru þau talin myndast í æxlissepum í slím- húð ristils. Vísbendingar eru um að skimun fyrir þessum krabbameinum og að fjar- lægja þá ristilsepa sem finnast, dragi úr nýgengi sjúkdómsins og lækki dánartíðni. = LANDFRÆÐILEGUR MUNUR Ristil- og endaþarmskrabbamein eru | talsvertalgengari ÍNorður-Evrópu, Norður- z Ameríku og Ástralíu heldur en í Suður- Ameríku, Asíu og Afríku. Nýgengið er að aukast í Japan, en þeir Japanir sem eru búsettir I Bandaríkjunum eru samt í mun meiri áhættu að fá sjúkdóminn. Þessi land- fræðilegi munur ( áhættu er talinn stafa fyrst og fremst af mismunandi lífsháttum, einkum mismunandi matarvenjum. Á Norðurlöndunum er hæsta nýgengi þess- ara krabbameina hjá Norðmönnum og Dönum og á þetta við bæði hjá körlum og konum, en munur milli landanna er þó ekki mikill. Lægsta nýgengi endaþarms- krabbameins á Norðurlöndunum er á ís- landi en skýring á því er ekki Ijós. FYLGST MEÐ BREYTINGUM Breytt hægðamynstur, t.d. nýtilkomið harðlífi og/eða niðurgangur, ásamt blóði í eða utan á hægðum eru algeng einkenni sjúkdómsins. Kviðverkir, uppþemba, lítil matarlyst, þreyta, slappleiki og þyngd- artap geta einnig verið einkenni. Einkenni ristilkrabbameins koma oft seint fram, einkum þegar æxlin eru hægra megin í ristli. (sumum tilfellum getur ristilkrabba- mein valdið mjög bráðum einkennum, t.d. garnaflækju eða garnastíflu. Þó áðurnefnd einkenni geti verið vís- bending um krabbamein er þó mun lík- legra að slíkt sé til komið af öðrum or- sökum svo sem vegna afrifa eða gyllinæðar. SPEGLUN TIL GREININGAR Þegar einkenni koma fram er rétt að fara í læknisrannsókn. Unnt er að rann- saka hvort blóð sé í hægðum og ef blóð finnst við slfka skoðun getur það verið vís- bending um krabbamein, þó aðrar skýr- ingar geti legið að baki. Hluti af venjulegri læknisfræðilegri líkamsskoðun er þreifing í endaþarm. Við slíka skoðun getur fundist æxlisvöxtur eða fyrirferð sem þarf að rann- saka nánar. Við þreifingu læknis á kvið er stundum hægt að finna fyrirferð sem getur verið vegna æxlisvaxtar í ristli. Áreiðanlegasta rannsóknin er speglun. Unnt er að gera endaþarmsspeglun og svonefnda bugaristilspeglun og er sú rannsókn tiltölulega auðveld. Einnig er unnt að gera heildarristilspeglun þar sem allur ristillinn er skoðaður, en sú rannsókn krefst ítarlegri úthreinsunar. Þá er unnt að skoða breytingar (öllum ristlinum með því að setja sveigjanlegt speglunartæki inn um endaþarminn, þræða það upp eftir ristlinum og skoða þannig slímhúðina. Hægt er að taka vefjasýni úr meinum eða afbrigðilegri slímhúð og með vefjarann- sókn er unnt að komast að þvf hvort um illkynja mein sé að ræða. Einnig er unnt að fjarlægja ristilsepa, sem geta verið forstig ristilkrabbameins, ( gegnum slík speglunartæki. Nýlega er farið að nota tölvusneiðmyndartæki til að taka myndir af ristlinum eins og verið sé að spegla rist- ilinn að innan og skima eftir breytingum í slímhúðinni. ÆXLIÐ SKORIÐ BURT Ristil- og endaþarmskrabbamein eru fyrst og fremst meðhöndluð með skurð- aðgerð. Til að minnka líkurnar á end- urkomu krabbameinsins fjarlægir skurð- læknirínn ekki eingöngu sjálft æxlið heldur Ristil- og endaþarmskrabbamein Nýgengi og dánartíðni 1951- 1956- 1961- 1966- 1971- 1976- 1981- 1986- 1991- 1996- 2001- 1955 1960 1965 1970 1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 Greiningarár / dánarár 20 HEILBRIGÐISMÁL 1/2007

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.